Beint í efni
Sumarh

Mið­viku­dag­inn 17. júní verð­ur dreg­ið í sum­ar­happ­drætti Krabba­meins­fé­lags­ins

Þau sem líta vilja fyrsta vinning augum, BYD Dolphin, 100% rafmagnsbíl, geta lagt leið sína í Smáralindina út 16. júní, en þar er einnig hægt að versla happdrættismiða á opnunartíma. 

Bíllinn er staðsettur á 1. hæð á milli Lyfju og Zara.

Athugið að ekki verður opið í verslun Krabbameinsfélagsins á þjóðhátíðardaginn en þau sem þurfa aðstoð við kaup á miðum, greiðslu krafna í heimabanka eða verslun á netinu geta haft samband með tölvupósti á vala@krabb.is.

Opið er í vefverslun allan sólarhringinn en sölu á happdrættismiðum lýkur þó klukkan 12 á hádegi þann 17. júní. 

Vinningaskrá verður birt á vefsíðu Krabbameinsfélagsins seinnipartinn þann 18. júní og í Morgunblaðinu föstudaginn 19. júní.

Sumarh