Beint í efni
Fólk á göngu í náttúrunni.

Met­þátt­taka á göngu­nám­skeiði – and­leg og lík­am­leg heilsu­bót

Metþátttaka er á göngunámskeiði Krabbameinsfélagsins og Ferðafélags Íslands, en námskeiðið er haldið í fimmta sinn nú í vor. Ótvíræður ávinningur er af hreyfingu fyrir þau sem eru í krabbameinsmeðferð eða hafa lokið henni. 

„Mér finnast þessar göngur frábærar,“ segir einn þátttakandi. „Ekki of erfiðar, en skemmtilegar og góður andi í hópnum. Það er góð byrjun á helginni að drífa sig af stað á laugardagsmorgni. Fararstjórar eru svo fróðir og ég er búin kynnast nýjum stöðum og sögu þeirra.“ Mestmegnis er gengið á sléttlendi á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess. 

Annar þátttakandi segir námskeiðið góða leið til að byggja upp þol eftir meðferð við krabbameini. „Fararstjórar eru reynslumiklir og miða gönguhraða við getu þátttakenda. Mæli eindregið með þessu námskeiði fyrir þau sem treysta sér í útiveruna.“

Hreyfing geti bætt lífsgæði og dregið úr þreytu 

Markmiðið með námskeiðinu er að njóta hollrar útvistar, fræðslu og félagsskapar við fólk sem deilir reynsluheimi og stuðla þannig að betri andlegri og líkamlegri heilsu fólks sem tekst á við afleiðingar krabbameins og meðferðar vegna þess.  

„Ýmsar rannsóknir hafa sýnt að hreyfing getur stuðlað að betri líðan og lífsgæðum hjá fólki sem er í krabbameinsmeðferð og eftir að henni lýkur,“ segir Sigrún Elva Einarsdóttir, teymisstjóri fræðslu og forvarna hjá Krabbameinsfélaginu. „Hún getur einnig dregið úr þreytu sem gerir oft vart við sig hjá þeim sem fá krabbamein og bætt andlega líðan. Það sama á við um fólk sem upplifir langvinnar eða síðbúnar aukaverkanir vegna krabbameins eða meðferðar.“ 

Sokkar á fótum í gönguskóm.
Fólk á göngu í náttúrunni.

Myndir: Gréta Björk Kristjánsdóttir

Áhersla á að njóta og hlaða orkuna úti í náttúrunni 

Samskipti innbyrðis fara fram í gegnum lokaðan hóp á facebook og hefur alltaf myndast góð stemning þar sem þátttakendur deila myndum úr göngunum eða ræða náttúrufyrirbrigði eða annað sem hefur orðið á vegi þeirra. Eins og áður segir er gengið á laugardagsmorgnum og umsjónarmenn og fararstjórar eru þau Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir. Þau taka einnig undir það að andinn í hópnum sé góður. 

„Frá fyrsta degi hefur ríkt áberandi mild og jákvæð orka í þessum hópum,“ segja þau. „Það að búa að þessari sameiginlegu reynslu tengir fólk saman á einstakan hátt og alveg frá upphafi hefur okkur þótt reglulega gaman að verja þessum stundum með þeim.“ Þau segja keppnisskap oft loða við útivistina, að stefna alltaf á hæstu toppa, en að markmiðið sé annað með þessu námskeiði. „Það ríkir mun meiri núvitund og markmiðið er miklu frekar að njóta og hlaða orkuna úti í náttúrunni.“ 

Við látum nokkrar myndir fylgja með sem fanga vel stemninguna, en myndasmiður er Gréta Björk Kristjánsdóttir. 

Fólk á göngu í náttúrunni.
Eyðibýli og fólk á göngu

Myndir: Gréta Björk Kristjánsdóttir