Beint í efni
Nikótínpúðar

Mark­aðs­öflin sækja að - Al­þjóð­legi tób­aks­lausi dag­ur­inn

Þann 31. maí er Alþjóðlegi tóbakslausi dagurinn en markmið hans er að vekja athygli á skaðlegum áhrifum tóbaks- og nikótínnotkunar.

Tóbaksnotkun er helsti áhættuþáttur krabbameina og eykur líkur á að minnsta kosti 15 tegundum krabbameina. Góður árangur hefur náðst í að draga úr reykingum á Norðurlöndunum undanfarna áratugi, en minni reykingar hafa ýtt undir vöruþróun hjá tóbaksframleiðendum, t.d. í átt að nikótínpúðum og rafrettum, til að tryggja sér viðskiptavini til framtíðar.

Á Alþjóðlega tóbakslausa deginum í ár er áhersla lögð á hvernig framleiðendur tóbaks- og nikótínvara beina markaðssetningu sinni að unglingum og ungu fólki. Meðal annars eru nikótínvörur með spennandi bragðtegundum og í aðlaðandi umbúðum kynntar á samfélagsmiðlum og í gegnum áhrifavalda með það að markmiði að höfða sérstaklega til barna og ungs fólks.

Fyrr í mánuðinum gaf Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) út skýrslu þar sem varað er við hraðri útbreiðslu nikótínpúða. Þar kemur meðal annars fram að regluverk margra ríkja hafi ekki haldið í við þróun nýrra nikótínvara og að markaðssetning á nikótínpúðum miði að því að gera notkun þeirra eðlilega og félagslega samþykkta í augum ungs fólks.

Þriðjungur ungs fólks á Íslandi notar nikótínpúða og er notkun þeirra meðal ungs fólks hlutfallslega mest á Íslandi samanborið við önnur Norðurlönd. Þrátt fyrir að nikótínpúðar innihaldi ekki tóbak eru þeir ekki hættulausir. Nikótínpúðar geta innihaldið mjög mikið magn nikótíns og eru því afar ávanabindandi. Þó langtímaáhrif af notkun þeirra séu ekki að fullu þekkt er ljóst að notkun þeirra getur aukið líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, haft neikvæð áhrif á heilaþroska ungs fólks og aukið líkur á að notendur byrji að reykja eða nota aðrar tóbaksvörur. Börn og unglingar eru sérstaklega viðkvæm fyrir skaðlegum áhrifum nikótíns.

Undanfarið hefur Krabbameinsfélag Íslands, ásamt öðrum norrænum krabbameinsfélögum innan Nordic Cancer Union (NCU), þrýst á Evrópusambandið um að endurskoða tóbaksregluverk sitt þannig að það nái einnig yfir nikótínvörur. Enn eru alvarlegir veikleikar í regluverkinu sem tóbaksiðnaðurinn nýtir sér og stórar áskoranir blasa við. Hér á landi náðist gríðarmikill árangur í að draga úr reykingum á sínum tíma og þann árangur sjáum við meðal annars í lækkuðu nýgengi lungnakrabbameins og dánartíðni af völdum þess. Mikilvægt er að við sofnum ekki á verðinum, heldur höldum áfram að sporna við markaðsöflunum og standa vörð um heilsu ungs fólks og komandi kynslóða.