Beint í efni
Mannamál

Manna­mál - karlar og krabba­mein

Námskeiðið Mannamál er kjörið tækifæri til að hitta aðra karla í svipuðum sporum, fá fjölbreytta fræðslu og gagnleg ráð. 

Námskeiðið er í fjögur skipti og ætlað körlum sem eru með krabbamein eða hafa lokið krabbameinsmeðferð.

Að fá krabbamein hefur víðtæk áhrif á fjölmarga þætti í lífi manns. Margar spurningar vakna. Hvort sem um ræðir erfiðar tilfinningar, samskipti við aðra eða eitthvað sem snýr að sjúkdómnum sjálfum getur skipt verulega miklu máli að sækja sér upplýsingar og leita ráðgjafar. Þú þarft ekki að standa einn.

Meðal þess sem rætt er um:

  • Áhrif þess að greinast með krabbamein og áhrif greiningarinnar á fjölskylduna
  • Karlmennskan, kynlíf og náin sambönd
  • Jafnvægi þegar kemur að virkni, hvíld og svefni
  • Mataræðið og mýtur því tengdu
  • Streitustjórnun og hugarró

Námskeiðið verður næst haldið þriðjudagana 14. apríl til 5. maí kl. 13:00 – 15:00 í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8. 

Leiðbeinandi er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur Krabbameinsfélagsins.  

Skráning og nánari upplýsingar er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. 

Ekkert þátttökugjald.