Beint í efni
Framför

Mál­þing: Meira en bara með­ferð­in

Krabbameinsfélagið Framför býður til málþings í húsi Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, þriðjudaginn 11. nóvember 2025 kl. 16:00.

Þema málstofu Framfarar í ár er „Meira en bara meðferð“. Krabbamein snýst ekki aðeins um frumur og líffæri, heldur líka um manneskjuna sjálfa sem veikist.

Á málstofunni verða sagðar reynslusögur, rætt um andlegt og tilfinningalegt álag á sjúkling og fjölskyldu, bjargráð og þrautseigju.

Einnig verður fjallað um lækningamátt samræðu milli jafningja.

Fyrirlesarar koma frá Krabbameinsfélagi Íslands, Ljósinu og Krabbameinsfélaginu Framför.

Málþingið er haldið í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík þriðjudaginn 11. nóvember 2025 kl. 16:00-17:30.

DAGSKRÁ

  • Setning - Guðmundur Páll Ásgeirsson formaður hjá Framför.
  • Bjargaði skimun mér? - Guðmundur Oddgeirsson hjá Framför.
  • Bjargráð - Harpa Ásdís Sigfúsdóttir hjá KÍ.
  • „Allt að koma” - Kjartan M. Kjartansson.
  • „Þú líka?“ - Matti Oswald frá Ljósinu.
  • Umræður og fyrirspurnir.
  • Ráðstefnuslit - Stefán Stefánsson framkvæmdastjóri hjá Framför.

Fundarstjóri - Hólmfríður Sigurðardóttir varaformaður hjá Framför.

Málþinginu verður streymt í streymisveitu Krabbameinsfélagsins.

Framför