Lokað vegna jarðarfarar
Lokað verður frá kl. 12 föstudaginn 13. nóvember vegna útfarar okkar kæra samstarfsmanns Guðmundar Pálssonar.
Gummi hóf störf haustið 2017 og var frá upphafi frábær liðsmaður. Það sýndi sig fljótt að hann gat haft marga hatta, stundum marga í einu, sem oft er þörf á hjá félagasamtökum. Hann var mannvinur, lét sig fólk varða og gaf af sér, ekki síst þeim sem stóðu aðeins höllum fæti. Með fasi sínu gat hann „dimmu í dagsljós breytt“. Hann var hrókur alls fagnaðar og líka góður vinur og félagi.
Það var mjög auðvelt að þykja vænt um Gumma og hann skilur eftir sig stórt skarð. Við erum þakklát fyrir samstarfið og vináttuna og minnumst Gumma með mikilli gleði en syrgjum sárt góðan vin.
Fjölskyldu Gumma okkar vottum við okkar innilegustu samúð.
