Beint í efni
Skógarmynd

Kynn­ing á nýju úr­ræði til að tak­ast á við streitu sem get­ur fylgt krabba­meini

Margir upplifa streitu í tengslum við krabbamein.  

Krabbameinsfélagið, í samstarfi við Nature and Forest Therapy Iceland og Skógræktarfélag Reykjavíkur, býður nú upp á kynningu á japönsku útivistinni Shinrin-yoku, gagnreynda aðferð til streitulosunar og endurheimtar í náttúrunni.

Leiðbeinendur eru Gunnþóra Ólafsdóttir, landfræðingur Ph.D. og Íris Lana Birgisdóttir, félagsráðgjafi M.A. sem hafa lokið þjálfun hjá Association of Nature and Forest Therapy (ANFT).

Kynningin er ætluð fólki sem hefur fengið krabbamein og aðstandendum.  

Hvað er shinrin-yoku náttúrumeðferð?

Shinrin-yoku, “skógarbað” er heiti á rólegheita útivist í skóglendi sem þróuð var í Japan. Um er að ræða leidda slökun með áherslu á tengsl við náttúruna. Gengin er stutt vegalengd (að hámarki 1 km) og á leiðinni er þátttakendum auðveldað að slaka á, virkja skynfærin og efla tengsl við náttúru og sig sjálf. Einnig gefst tækifæri til að sitja í þögn og að deila upplifun sinni . Markmiðið er aukin ró og betri líðan.

Rannsóknir sýna að 2 tíma skógarbað getur:

  • Dregið úr streitu og skapað betra jafnvægi í virkni miðtaugakerfisins
  • Dregið úr vanlíðan, aukið hamingju og vellíðan
  • Dregið úr heilaþoku,aukið orku til athafna og stuðlað að seiglu
  • Bætt einbeitingu, sköpunargáfu og getu til að leysa flókin verkefni
  • Stuðlað að innri ró og sátt
  • Styrkt ónæmiskerfið

Hvað þarf að hafa með sér?

Þátttakendur þurfa að koma vel nærðir og útbúnir fyrir 2 tíma hæglætis útivist og kyrrsetu. Þátttakendur fá vatnsheldar sessur til afnota. Hlýr, þægilegur og vatnsheldur klæðnaður og grófir skór eru nauðsyn. Gott er að taka með sér teppi, vatn og jafnvel eitthvað heitt að drekka á hitabrúsa.

Þátttaka er ókeypis en takmarkast við 20 manns í hverjum viðburði. Því er mjög mikilvægt að láta vita af forföllum með fyrirvara í síma 800 4040.

Náttúrumeðferðin fer fram í Heiðmerkurskógi við jaðar Elliðavatns

  • miðvikudaginn 15. apríl kl. 13-15
  • miðvikudaginn 22. apríl kl. 13-15
  • miðvikudaginn 29. apríl kl. 13-15

Þátttakendur mæta við Elliðavatnsbæinn.

Mæting er kl. 12:50 og gangan hefst stundvíslega kl. 13. Ekki er hægt að slást í hópinn eftir að gangan hefst.

Ef veðurspá er óhagstæð fyrir hæglætisútivist af þessu tagi getur þurft að fresta viðburðinum. Komi til þess verða þátttakendur látnir vita með tölvupósti og/eða SMS.