Beint í efni

Kvöld­verð­ur til styrktar Vís­inda­sjóði Krabba­meins­fé­lags­ins

Eyþór Gylfason, matreiðslumaður, stendur fyrir styrktarkvöldverði þann 8. júní næstkomandi í samstarfi við veitingastaðinn Monkeys Restaurant. Ágóðinn af kvöldinu rennur óskiptur til Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins og mun styðja við íslenskar krabbameinsrannsóknir.

Hugmyndina að viðburðinum fékk Eyþór síðastliðið sumar þegar móðir hans barðist við ristilkrabbamein, en hún lést 19. nóvember síðastliðinn. „Hugmyndin var byrjuð að gerjast, en áfallið við að missa mömmu gerði það að verkum að mig langaði til að láta þetta verða að veruleika, segir Eyþór. „Ég lærði að lífið er stutt og hef sjaldan verið jafn fullur af eldmóði til framkvæmda. Mig langar til að nýta hann til góðra verka og ég vona að þetta framtak hvetji aðra til að láta gott af sér leiða.“

Bókaðu borð hér og taktu þátt í upplifuninni.Á facebook-síðu viðburðarins má nálgast allar nánari upplýsingar um styrktarkvöldverðinn.Þeir sem ekki eiga heimangengt en vilja engu að síður leggja Eyþóri lið við söfnunina geta styrkt verkefnið hér.Kvöldið verður 7 rétta máltið með óafengri drykkjapörun. Borðin verða “community table” svo kvöldið býður upp á góðan mat, fjölbreyttan félagsskap og öðruvísi og spennandi drykkjapörun.Matseðill kvöldsins er glæsilegur:
TómatseyðiÍslenskir tómatar, steinselja og rúgbrauðsflögurLaxa mosaicSýrður blaðlaukur, kryddjurtakrem og stökkar nípurGrafið lambainnralæriMöndlumulningur, graslaukskrem, enoki sveppir og 24 mánaða FeykirSmjörpóseraður karfiDjúpsteikt polenta, gerjaðar gulbeður, rifsber og hvítvínssósaGljáð svínasíðaHvítlaukskartöflumús, sellerírótarmauk, stökkt grænkál og trufflugljáiBláberBláberjaseyði, fennel og appelsínurBasil og lime lagterta

Umhverfið og lýðheilsa í forgrunni

Matseðillinn er sjö rétta veisla fyrir bragðlaukana og leggur Eyþór áherslu á vandað, íslenskt hráefni. Kolefnisspor matvæla er honum líka ofarlega í huga við samsetningu matseðilsins. „Rétt eins og Krabbameinsfélagið gætir að framtíð þeirra sem greinast með krabbamein og aðstandenda þeirra, þá þarf matreiðsluheimurinn að gæta að framtíð jarðarinnar. Ég vil leggja áherslu á að nota hráefni sem þarf ekki að sækja langt út í heim.“

Samhliða því að umhverfisvitund fólks hefur verið að aukast undanfarin ár fjölgar einnig stöðugt í hópi þeirra sem velja áfengislausan lífsstíl. Á viðburði Eyþórs verður því einnig leitað út fyrir kassann í þeim efnum og boðið upp á óáfenga drykkjarpörun með hverjum rétti. Eyþór vinnur að því ásamt Sigurði Borgari Ólafssyni, framreiðslumanni, að para ólíka og spennandi óáfenga drykki við réttina. „Margir kjósa að sleppa áfengi en vilja samt fá þessa stemningu. Það þarf ekki alltaf að vera vín og það er spennandi áskorun að skipuleggja kvöldverð af þessu tagi án hefðbundinnar vínpörunar,“ segir Eyþór.

Fyrirkomulagið á kvöldinu er þannig að seld eru stök sæti við stærri borð, svokölluð community tables. Borðin munu því jafnvel rúma einstaklinga, pör og hópa sem þekkjast ekki innbyrðis. Viðburðurinn er því ekki síður tækifæri til að kynnast fólki og mynda tengsl við aðra sem vilja leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn krabbameinum.

Umkringdur góðu fólki

Eyþór starfar hjá Monkeys Restaurant og er þeim þakklátur fyrir stuðninginn við verkefnið. „Strax og maður stígur eitt skref koma sex aðrar hendur og ýta manni áfram. Ég er umkringdur mjög góðu fólki og þakklátur eigendum Monkeys fyrir að vera tilbúin að leyfa mér að nýta aðstöðuna og tengslanetið þeirra. Allir sem koma að þessu með mér eru að gefa vinnuna sína og ég vona að þau skemmti sér líka við að skapa þessa upplifun fyrir gestina.“ 

https://www.youtube.com/watch?v=L97QCfdRgS8