Beint í efni
Þorri Snæbjörnsson

Krabba­meins­með­ferð lokið en hvað svo? Ótt­inn við að end­ur­grein­ast

Sem betur fer hafa orðið miklar framfarir í meðferð krabbameina og sífellt fleiri ná bata. Flestir sem teljast hafa lokið krabbameinsmeðferð lifa þó áfram með ákveðnum áhyggjum og óvissu, því krabbamein getur tekið sig upp aftur. Þessar tilfinningar verða oft mildari með tímanum, en sumum reynist erfitt að takast á við þær og upplifa jafnvel litla stjórn á eigin lífi. 

Ótti við endurkomu er kvíðatengdur vandi og getur, líkt og kvíði og þunglyndi, verið mismikill og náð frá sveiflukenndum, vægum einkennum yfir í langvarandi og alvarleg einkenni. Ótti við endurkomu krabbameins er ekki formleg greining en getur valdið einkennum sem líkjast kvíða og þunglyndi og geta skert lífsgæði þess sem hann upplifir.  

Mikill ótti við endurkomu einkennist af viðvarandi og ágengum hugsunum um að krabbameinið taki sig upp að nýju, óhóflegum áhyggjum og aukinni athygli og næmni fyrir líkamlegum einkennum. Einkennin geta verið hamlandi og valdið verulegri sálrænni vanlíðan eða skertri færni. 

Ótti er náttúrulegt viðbragð sem kviknar þegar við upplifum raunverulega eða ímyndaða líkamlega eða sálræna ógn eða hættu. Ótti getur hjálpað okkur að aðlagast og haldið okkur öruggum og með tímanum ætti hann að minnka, eftir því sem lengra er liðið frá meðferð og eftir því sem fólk fær oftar góðar fréttir í eftirlitinu eftir krabbamein. Hjá sumum þá virðist óttinn þó ekki minnka og þá á fólk erfitt með að finnast það vera öruggt og það getur valdið vanlíðan og haft áhrif á lífsgæði. Það geta verið ólíkar ástæður sem kveikja óttann hjá ólíkum einstaklingum en algengt er að fólk upplifi ótta þegar fara þarf á spítalann í rannsóknir og að fá niðurstöður. Það getur líka reynst fólki erfitt að heyra fréttir af öðrum sem eru að greinast, eða að finna fyrir nýjum óþægindum eða verk. 

Það hjálpar að tala við einhvern um óttann, hvort sem það er fagaðili, vinur eða fjölskyldumeðlimur. Þegar við tölum um vanlíðan okkar getur það hjálpað okkur að setja hlutina í samhengi og að hugsa skýrar. Því meiri áhyggjur sem við höfum af hlutunum, því verri virðast þeir, og þvígetur verið mikill léttir að segja hlutina upphátt. Það hjálpar líka að læra að endurmeta og takast á við hugsanir sem tengjast óttanum í stað þess að forðast þær og þar getur verið gott að tala við einhvern sem getur leiðbeint og gefið góð ráð. Sem aðstandandi getur verið gott að forðast að gefa of miklar ráðleggingar og ætla að leysa málin fyrir viðkomandi heldur getur fólk haft meiri þörf fyrir að það sé einfaldlega hlustað og gefið tækifæri til þess að setja óttann í orð. Einnig getur verið hjálplegt að skrifa niður hugsanir sínar tengdar óttanum, því það hjálpar oft til við að setja hlutina í samhengi.  

Það er algengt að fólk einangri sig þegar það upplifir vanlíðan, í stað þess að leita stuðnings. Þess vegna er mikilvægt að vita hvert hægt er að leita ef áhyggjur af því að meinið hafi tekið sig upp aftur gera vart við sig. Það er einnig mikilvægt að vita hvaða einkennum á að vera vakandi fyrir,og ekki síður mikilvægt að muna að það er eðlilegt að upplifa verki eða líkamleg óþægindi og ekki er þörf að hitta lækni í hvert skipti sem óþægindi gera vart við sig. Aukaverkanir krabbameinsmeðferða eru algeng og geta verið til staðar áfram eftir að meðferð lýkur. Það tekur oft tíma að treysta líkamanum aftur eftir alvarleg veikindi og þá hjálpar að huga að grunnþörfum á borð við svefn, næringu, hreyfingu og félagsleg tengsl, halda góðri rútínu og sinna hlutum sem veita okkur ánægju. Það er hins vegar algengt að fólk einangri sig þegar það upplifir vanlíðan, í stað þess að leita stuðnings. 

Hjá Krabbameinsfélaginu starfa félagsráðgjafar, hjúkrunarfræðingar og sálfræðingar sem veita fólki sem fengið hefur krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning og ráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ásamt því að bjóða upp á hin ýmsu námskeið sem hjálpa fólki að aðlagast og takast á við veikindin. Á vefsíðu Krabbameinsfélagsins (Krabb.is) er hægt að fá nánari upplýsingar um þjónustuna. 

Höfundur: Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur og teymisstjóri Krabbameinsfélaginu. 

  • Grein birtist í Skoðun á Visir.is 29. október 2026.