Krabbameinsfélagið tekur þátt í evrópsku krabbameinsvikunni
Nú stendur yfir evrópska krabbameinsvikan (European week against cancer) Þá vekja evrópsk krabbameinsfélög athygli á ýmsum þáttum sem skipta máli í því marghliða verkefni sem krabbamein er. Krabbameinsfélagið hefur útbúið myndbönd sem er ætlað að vekja athygli á málefnum vikunnar.
Krabbameinsfélagið hefur útbúið myndbönd sem er ætlað að vekja athygli á málefnum vikunnar.
Forvarnir: Vissir þú að það er hægt að draga verulega úr líkum á um 40% krabbameinstilfella með lífstílsbreytingum?
Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu.
Sjúklingar og eftirlifendur: Krabbameinsfélagið býður upp á gjaldfrjálsan stuðning og ráðgjöf við krabbameinsgreinda, aðstandendur og syrgjendur.
Lóa Björk Ólafsdóttir, sérfræðingur í ráðgjöf og stuðningi hjá Krabbameinsfélaginu.
Stafræn heilsa: Krabbameinsgáttin er stafræn heilbrigðisþjónusta sem styður við einstaklinga með krabbamein heima og á milli meðferða.
Sigríður Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs – Krabbameinsskrár hjá Krabbameinsfélaginu.
Þátttaka í skimunum er mjög mikilvæg; því fyrr sem krabbamein eða forstig finnast, því meiri líkur eru á að meðferð beri árangur. Þó skal tekið fram að skimanir veita ekki tryggingu gegn krabbameinum.
Birgitta Lind Vilhjálmsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og forvörnum hjá Krabbameinsfélaginu.