Beint í efni
  1. Heim
  2. Starfið
  3. Fréttir og miðlun
  4. Krabbameinsfélagið styrkir Ljósið um 5 milljónir
Erna Magnúsdóttir og Halla Þorvaldsdóttir.

Krabba­meins­fé­lag­ið styrk­ir Ljós­ið um 5 millj­ón­ir

Í tilefni af flutningi Ljóssins í nýtt húsnæði að Gylfaflöt 5 færði Krabbameinsfélagið Ljósinu styrk að upphæð 5 milljónir til að bæta tækjaaðstöðu í nýjum æfingasal.

Hreyfing er gríðarlega mikilvægur þáttur í endurhæfingu og getur haft áhrif til lengri tíma, meðal annars til að draga úr langvinnum og síðbúnum aukaverkunum krabbameina og krabbameinsmeðferða. 

„Starfsemi Ljóssins hefur fyrir löngu sannað gildi sitt og samningur Sjúkratrygginga við Ljósið er eitt stærsta framfaraskref sem tekið hefur verið í þjónustu við fólk með krabbamein,“ sagði Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, í ræðu sinni við afhendingu styrksins. „Endurhæfing fólks með krabbamein og jafningjastuðningur er orðinn sjálfsagður hlutur, bæði almennt í huga fólks og staðfest með vísindarannsóknum.“

Styrkveiting Krabbameinsfélagsins til Ljóssins.

Hún undirstrikaði einnig þá staðreynd að mikilvægi endurhæfingar fer ekki minnkandi heldur þvert á móti, því krabbameinstilvikum fer mjög fjölgandi og lifendum fjölgar sömuleiðis. Sú staða kallar á aukna þjónustu, við fólk með krabbamein og hóp lifenda sem er að takast á við langvinnar aukaverkanir. Krabbameinsfélagið hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á að mæta þörfum þeirra sem takast á við slíkar aukaverkanir og bindur miklar vonir við samstarf við Ljósið um þjónustu við þann hóp. 

Við hjá Krabbameinsfélaginu óskum vinum okkar í Ljósinu og öllum þeim sem sækja þangað mikilvæga og nauðsynlega þjónustu hjartanlega til hamingju með nýtt og glæsilegt húsnæði sem á eftir að vera bylting fyrir starfsemi þess.  

Styrkveiting Krabbameinsfélagsins til Ljóssins.