Beint í efni
Ganga

Krabba­meins­fé­lag­ið stofnar Fram­fara­sjóð

Krabbameinsfélagið og aðildarfélög þess hafa sett á laggirnar Framfarasjóð Krabbameinsfélagsins sem ætlað er að styrkja með fjárframlögum ný verkefni sem bæta þjónustu við fólk með krabbamein og aðstandendur þess, með og eftir krabbamein og efla forvarnir gegn krabbameinum. Stofnfé sjóðsins er 75 milljónir króna og tók hann formlega til starfa í ágúst. Auglýst verður eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á næstunni.

„Krabbameinsfélagið hefur í gegnum tíðina átt frumkvæði að mörgu í krabbameinsforvörnum og ýmsu sem hefur skipt sköpum í þjónustu við fólk með krabbamein. Við höldum því auðvitað áfram og gerum enn betur með stofnun Framfarasjóðsins á 75 ára afmæli félagsins. Með sjóðnum gefum við fólki utan félagsins tækifæri til að leggja málaflokknum lið með góðum hugmyndum og bjóðum styrki til að gera þær að veruleika. Vonandi streyma hugmyndirnar inn“ segir Hlíf Steingrímsdóttir, formaður Krabbameinsfélagsins.

Framfarasjóður Krabbameinsfélagsins hefur það hlutverk að styrkja ný verkefni sem stuðla að bættri þjónustu við fólk með krabbamein og aðstandendur þess, með og eftir krabbamein, og efla forvarnir gegn krabbameinum. Sjóðurinn mun leggja sérstaka áherslu á verkefni sem fela í sér framfarir, nýsköpun og þróun eða umbætur sem geta skilað varanlegum ávinningi fyrir einstaklinga, samfélagið eða heilbrigðiskerfið.

„Við vitum að krabbameinstilvikum fjölgar mjög hratt og á sama tíma er heilbrigðiskerfið aðþrengt. Það kallar á að finna fleiri leiðir til að tryggja fólki með krabbamein og aðstandendum þess sem besta þjónustu. Framfarasjóði er ætlað að skapa aðstæður til að hægt verði að hrinda góðum hugmyndum hratt í framkvæmd“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.

Stjórn Framfarasjóðs Krabbameinsfélagsins

Sigríður Mogensen, sviðsstjóri Samtaka iðnaðarins, er formaður stjórnar sjóðsins en meðstjórnendur eru Rögnvaldur Sæmundsson, aðstoðarrektor Háskóla Íslands, og Vala Smáradóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins. Varamenn eru Arnar Árnason, endurskoðandi og Hrefna Eyþórsdóttir, formaður Krabbameinsfélags Austfjarða.

„Það er mjög mikill heiður að fá að leiða starf Framfarasjóðs Krabbameinsfélagsins og mér finnst stofnun hans sýna mikinn metnað félagsins í átt að enn að meiri árangri. Við þekkjum öll krabbamein í okkar nánasta umhverfi og vitum hve glíman tekur á en ég er viss um að í þeirri baráttu hafa vaknað hugmyndir um hvað væri hægt að gera betur eða öðruvísi sem sjóðurinn getur hjálpað til við að láta verða að veruleika. Það er mikils virði að fá að taka þátt í því, hvort sem það snýr að því að fækka krabbameinstilfellum með enn betri forvörnum eða bæta líf þeirra sem eru að takast á við krabbamein“ segir Sigríður Mogensen, formaður sjóðsins.

Fagráð Framfarasjóðs Krabbameinsfélagsins

Þá hafa eftirtaldir verið skipaðir í fagráð sjóðsins en hlutverk þess er að fara yfir umsóknir og veita stjórn sjóðsins umsögn um þær.

  • Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
  • Guðmundur Oddgeirsson, formaður Krabbameinsfélagsins Framfarar.
  • Hanna Kristín Guðjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í upplýsingatækni.
  • Jakob Jóhannsson, krabbameinslæknir.
  • Margrét Helga Ögmundsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands.