Beint í efni
Gottogeinfalt.is

Krabba­meins­fé­lag­ið og SÍBS opna mat­ar­vef með holl­um upp­skrift­um

Krabbameinsfélagið og SÍBS, í samvinnu við embætti landlæknis hafa opnað matarvefinn gottogeinfalt.is. Á vefnum má finna einfaldar, næringarríkar og hagkvæmar uppskriftir sem taka mið að opinberum ráðleggingum landlæknis um  mataræði. Markmið vefsins er að hafa jákvæð áhrif á mataræði og heilsu þjóðarinnar með því að gera holla og næringarríka kosti aðgengilega öllum. 

Uppskriftir, vikumatseðill og innkaupalisti fyrir vikuna

Á gottogeinfalt.is er fjölbreytt safn uppskrifta og á vefnum geta notendur sett saman sinn eigin vikumatseðil með örfáum smellum.  Fjölskyldan getur til að mynda valið rétti saman, þannig að allir fá eitthvað við sitt hæfi. Þegar vikumatseðillinn er tilbúinn býr vefurinn sjálfkrafa til innkaupalistasem hægt er að aðlaga þeim fjölda sem elda á fyrir. Ef hráefnin eru þegar til staðar á heimilinu þá er auðvelt að haka þau af innkaupalistanum og sömuleiðis er hægt að bæta við þeim vörum á innkaupalistann sem vantar úr búðinni. Á Mínum síðum má vista uppáhaldsuppskriftir og matseðla sem hafa reynst vel, til að grípa í aftur síðar. Á vefnum má leita að uppskriftum út frá hráefnum sem þegar eru til og þannig minnka matarsóun. Einnig er hægt að merkja við ofnæmisvalda ef ofnæmi eða óþol eru til staðar og fá upp uppskriftir án þeirra innihaldsefna.

 Auk uppskrifta inniheldur Gott og einfalt leiðbeiningar og fræðslu um eldamennsku, næringu, matarsóun og fleira.

Mataræði einn stærsti áhrifaþáttur heilsu

Á Íslandi er umfang heilsufarsskaða um 1000 milljarðar króna á ári. Þar er bæði um að ræða beinan kostnað heilbrigðiskerfisins og glataðar framleiðslustundir vegna skertrar heilsu. Mataræði er einn stærsti einstaki áhrifaþáttur heilsu.  Rannsóknir sýna að hollt, fjölbreytt og næringarríkt mataræði getur dregið úr líkum á krabbameinum og öðrum lífsstílstengdum sjúkdómum.

Gott og einfalt bragðgóðar 1
Einföldum lífið með vikumatseðlum
Vikumatseðill