Beint í efni
Afmælishero

Krabba­meins­fé­lag­ið – með þjóð­inni í 75 ár

Krabbameinsfélagið fagnar 75 ára afmæli í ár. Af því tilefni er gott að líta bæði yfir farinn veg og fram á við. Mikill árangur hefur náðst en stórar áskoranir eru framundan sem fylgja gríðarlegri fjölgun krabbameinstilvika.

Krabbamein snertir okkur öll. Þriðji hver íbúi landsins getur vænst þess að fá krabbamein á lífsleiðinni og flestallir eru einhvern tíma í hlutverki aðstandanda, stundum oftar en einu sinni.

Krabbameinsfélagið með aðildarfélögum sínum um allt land og stuðningsfélögum er tryggur bakhjarl þegar krabbamein kollvarpar tilverunni.

Við bjóðum stuðning og sérhæfða ráðgjöf fagfólks fyrir fólk með krabbamein og aðstandendur, við greiningu, í meðferð og eftir krabbamein en líka við lífslok og í sorg. Sálfræðingar, hjúkrunarfræðingar og félagsráðgjafar bjóða viðtöl og fjölbreytt námskeið, með það að markmiði að auðvelda fólki að aðlagast breyttum aðstæðum eftir að lífið hefur tekið óvænta stefnu.

Við nýtum þekkingu og gögn til að bæta þjónustu, fræða og hvetja til aðgerða og lífsstíls sem minnka líkur á krabbameinum því mörg krabbamein hafa þekkta lífsstílstengda áhættuþætti.

Því lífið liggur við

Mikill árangur hefur náðst. Fimm ára lífshorfur hafa meira en þrefaldast frá árinu 1960 og í dag lifa þrír af hverjum fjórum þeirra sem fá krabbameiní fimm ár eða meira. Það er hins vegar ekki nærri nóg og við setjum markið enn hærra. Áskoranirnar sem fylgja mikilli fjölgun krabbameinstilvika eru gríðarstórar en við beitum okkur fyrir að tryggja aðgengi allra að bestu fáanlegu meðferð færustu sérfræðinga við bestu aðstæður.

Við trúum því að vísindin marki leiðina fram á við. Við fjárfestum í innviðum og sinnum vísindastarfi og úr Vísindasjóði félagsins hefur verið úthlutað 655,5 milljónum til krabbameinsrannsókna. Stór rannsókn á lífsgæðum fólks með og eftir krabbamein mun varða leiðina við að þróa enn betri þjónustu við fólk með og eftir krabbamein, líka við þá sem glíma við langvinnar og síðbúnar afleiðingar krabbameins og meðferðar.

Með stuðningi þjóðarinnar höfum við helgað okkur baráttunni gegn krabbameinum í 75 ár, svo færri veikist, fleiri lifi og líði betur.

Við kvikum hvergi heldur höldum ótrauð áfram, með þér og fyrir þig. Því lífið liggur við.

Trygg­ur bak­hjarl í 75 ár

Krabbameinsfélagið er tryggur bakhjarl um allt land þegar lífið tekur óvænta stefnu. Við veitum stuðning og ráðgjöf, vinnum að forvörnum, stundum rannsóknir, styrkjum vísindastarf og beitum okkur fyrir framförum.

Rannsóknir