Krabbameinsfélagið í 75 ár
Krabbameinsfélagið fagnar 75 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni var útbúið myndband þar sem stiklað er á stóru yfir starf félagsins í gegnum árin.
„Við stofnun félagsins voru læknarnir málsvarar sjúklinganna, en nú eru þeir sjálfir til frásagnar,“ segir í myndbandinu, þar sem farið er með myndrænum hætti yfir þau djúpu spor sem Krabbameinsfélagið hefur markað. Myndbandið var frumsýnt á aðalfundi félagsins þann 9. maí síðastliðinn.
Saga Krabbameinsfélagsins spannar stóra áfanga í baráttunni gegn krabbameinum. Skipuleg skráning krabbameina í krabbameinsskrá hófst að frumkvæði félagsins og félagið barðist fyrir innleiðingu skimana fyrir legháls- og brjóstakrabbameinum og sá um framkvæmd skimananna á Leitarstöð félagsins í áratugi. Hjá félaginu urðu til ýmis verkefni eins og líknarþjónusta í heimahúsum undir nafni Heimahlynningar, símaráðgjöf við sjúklinga og aðstandendur, auk þess sem félagið var í lykilstöðu við að koma á öflugum tóbaksvörnum.
Framundan eru stórar áskoranir tengdar væntanlegri fjölgun krabbameinstilvika og aukinni þörf fyrir þjónustu. Krabbameinsfélagið heitir því að mæta þeim af sama krafti og á undanförnum árum. Með bestu þekkingu að leiðarljósi leggjum við áherslu á forvarnir gegn krabbameinum, að líðan fólks með og eftir krabbamein sé sem best og að fólk á Íslandi hafi aðgengi að bestu krabbameinsþjónustu og meðferð við bestu aðstæður, því lífið liggur við.
