Beint í efni
Kastað til bata

Kastað til bata 2026

„Kastað til bata“ er samstarfsverkefni á vegum Brjóstaheilla - Samhjálpar kvenna, Krabbameins­félagsins, Stangveiðifélags Reykja­víkur og styrktaraðila, þar sem konum er boðið til veiðiferðar.

Verkefnið er hugsað sem endurhæfing fyrir konur vegna brjóstakrabbameins.

Markmið veiðiferðarinnar er að veita konum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í fallegu umhverfi og njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu.

Vanir fluguveiðimenn kenna þátttakendum að kasta flugu og er ávallt tekið mið af líkamlegri getu þeirra.

Langá á Mýrum 29. - 31. maí 2026

Næsti viðburður verður við Langá á Mýrum dagana 29. - 31. júní og geta 14 konur tekið þátt.

Ferðin er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Áhugasamar konur sem vilja taka þátt skulu sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði fyrir 26. apríl næstkomandi.

Hafið samband með tölvupósti (radgjof@krabb.is) eða síma (800 4040) fyrir frekari upplýsingar.

Firmamerki