Beint í efni

Jóga nidra bæt­ir svefn og dreg­ur úr van­líð­an

Jóga nidra eru afar vel sóttir opnir tímar tvisvar í viku í húsi Krabbameinsfélagsins. Djúpslökun og hugleiðsla geta haft margvíslegan jákvæðan ávinning fyrir heilsu okkar og líðan. Í hlaðvarpi félagsins má nálgast upptökur fyrir fjariðkun. 

„Það er með þessa iðkun eins og aðra, það þarf að æfa sig til að árangur náist,“ segir Lóa Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur og annar af umsjónaraðilum tímanna. „Jóga nidra er ævaforn tækni sem byggir á því að líkami og hugur eru leidd inn í djúpt slökunarástand.“  

„Í því ástandi hægist á heilabylgjunum og þau svæði í heilanum sem hafa með rökhugsun, skynjun á líkamanum og líðandi andartak að gera eru virkjuð. Hins vegar verður minni virkni á þeim svæðum sem hafa með streituviðbrögð að gera.“ 

Við höfum um árabil boðið upp á Jóga nidra djúpslökun og hugleiðslu tvisvar í viku, enda sýna rannsóknir að slíkt getur skipt miklu máli fyrir þau sem glíma við langvarandi streituástand. Jóga nidra iðkun getur meðal annars bætt svefn og svefngæði og gagnast þeim sem glíma við andlega eða líkamlega vanlíðan. 

Hvíld og endurnæring fyrir huga og líkama

Í jóga nidra kemur þú þér fyrir í þægilegri slökunarstöðu, liggjandi eða í hægindastól eftir því sem hentar best. Það eina sem þú þarft að gera er að hlusta og fylgja röddinni sem leiðir þig í gegnum hugleiðsluna og í hugarástand sem er mitt á milli svefns og vöku. Á þeim stað getur átt sér stað mikilvæg hvíld og endurnæring fyrir huga og líkama sem getur styrkt taugakerfið, haft jákvæð áhrif á andlega heilsu og eflt hjartaheilsu. 

Tímarnir eru alltaf vel sóttir og takmarkaður fjöldi kemst að hverju sinni. Fyrir þau sem eiga ekki heimangengt á þeim tímum bjóðum við upp á nokkrar útgáfur af leiddri slökun í hlaðvarpi Krabbameinsfélagsins. Þær æfingar er hægt að gera í næði heima fyrir hvenær sem hentar. Ein æfingin snýr sérstaklega að undirbúningi fyrir aðgerð, en slíkt dregur úr kvíða og getur bætt líðan eftir aðgerð. 

Hef­ur þú áhuga á að kynna þér jóga nidra?

Tímarnir eru alla þriðjudaga og fimmtudaga í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, kl. 10:50 - 12:00.

Skráning fer fram á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.

Hlustaðu á upptöku hvar og hvenær sem er - úrval í boði í hlaðvarpi Krabbameinsfélagsins.