Beint í efni

Hvert skref skipt­ir máli

Börn og unglingar á Austurlandi létu gott af sér leiða fyrr í mánuðinum þegar Styrkleikar Krabbameinsfélagsins voru haldnir í fjórum bæjum á svæðinu. 

Við hjá Krabbameinsfélaginu heyrum fólk svo oft segja: „Ég vildi bara að ég gæti gert eitthvað,“ þegar einhver sem stendur þeim nærri fær krabbamein. Á Styrkleikunum vinna þátttakendur saman að því að virkja samfélagið, styrkja tengslin og sýna samstöðu í verki. 

Mörg hundruð nemendur og starfsfólk af öllum skólastigum í fjórum bæjum á Austurlandi sýndu stuðning og hlýju með þátttöku sinni á Styrkleikunum fyrr í mánuðinum. Margar leiðir eru til að halda Styrkleikana og hefur verið gaman að fylgjast með skólum um allt land aðlaga þá að sínu skólastarfi og skapa hver um sig sína einstöku stemningu. 

Á Styrkleikum Fellaskóla í Fellabæ hófst dagurinn með fræðandi fyrirlestri frá Höllu Þorvaldsdóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins. Að fyrirlestrinum loknum gekk hver árgangur skólans einn hring í kringum íþróttavöllinn og því næst gekk starfsfólk skólans einn hring með dyggri aðstoð og hvatningu nemenda. Hápunktur dagsins var síðan þegar allir viðstaddir sameinuðust á vellinum og mynduðu eitt stórt hjarta. 

Styrkleikar í Fellaskóla.
Styrkleikar í Fellaskóla.
Styrkleikar í Fellaskóla.
Styrkleikar í Fellaskóla.

Stutt spor með mikil áhrif 

Nemendur í grunnskóla Fáskrúðsfjarðar tóku þátt í Styrkleikunum með því að hlaupa hringinn í kringum ósinn, á meðan krakkarnir í leikskólanum Kærabæ fóru í boðhlaup á sparkvellinum og gengu um leikskólalóðina. Að sögn skólastjórnenda voru þetta góðar stundir þar sem hreyfing og gleði voru í fyrirrúmi. Þær sýndu svo sannarlega að sporin þurfa ekki að vera stór til að hafa mikil áhrif. 

Styrkleikar á Fáskrúðsfirði.
Styrkleikar á Fáskrúðsfirði.

Í grunnskóla Reyðarfjarðar gafst nemendum og starfsfólki kostur á að ganga eða hlaupa hringi um íþróttasal skólans. Mikill áhugi var fyrir þátttöku og afraksturinn voru 6.800 hringir, eða 748 kílómetrar. „Við erum mjög stolt af öllum sem tóku þátt og þökkum fyrir frábæran dag saman,“ segir í frétt sem skólinn birti á vef sínum um viðburðinn.

Styrkleikar á Reyðarfirði.
Styrkleikar á Reyðarfirði.

Táknræn samstaða á öllum skólastigum

Á Neskaupsstað sameinuðust öll skólastig um þátttöku. Samtals tóku 340 börn, ungmenni og starfsfólk tóku þátt í boðhlaupi þar sem blönduð lið skiptust á að hlaupa þvert yfir SÚN-völlinn. Í lokin mynduðu þátttakendur stórt hjarta á vellinum sem táknaði samstöðuna sem einkenndi daginn. Einstök stemningin sést glöggt á meðfylgjandi myndbandi.

Við þökkum Krabbameinsfélagi Austfjarða, skipuleggjendum, nemendum, starfsfólki og öllum sem komu að Styrkleikunum kærlega fyrir þátttökuna. Styrkleikarnir eru táknræn áminning um það að hver einasti einstaklingur getur lagt sitt af mörkum og hvert einasta skref skiptir máli.

Vilt þú skipuleggja Styrkleika?

Styrkleika má skipuleggja hvar sem er og laga að þörfum hvers og eins samfélags. Styrkleikarnir snúast um samstöðu, samveru og samtakamátt og að styðja við, heiðra eða minnast einstaklinga sem hafa fengið krabbamein. 

Krabbameinsfélagið styður við þau sem taka að sér að skipuleggja Styrkleika í sínu nærumhverfi og á þann grunnbúnað sem þarf. Hafir þú áhuga á að halda Styrkleika hvetjum við þig til að nálgast upplýsingar og aðstoð með því að senda tölvupóst á styrkleikarnir@krabb.is.