Hönnun innblásin af þakklæti
Á hverju ári í Mottumars, árlegu árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélagsins, framleiðir og selur félagið Mottumarssokka með nýrri hönnun.
Mottumarssokkarnir í ár eru einstaklega litríkir og fallegir. Þeir eru hannaðir af Stefáni Svan Aðalheiðarsyni í Stefánsbúð í samstarfi við grafísku hönnuðina Lindu Loeskow og Anton Kaldal Ágústsson. Stefán var valinn úr hópi tæplega 100 aðila sem sóttu um að fá að hanna sokkanna.
„Stefánsbúð var stofnuð 2017 af mér og vinkonu minni Dúsu. Í dag rek ég verslunina með unnusta mínum Ólafi Kristjáni Guðmundssyni. Við seljum hönnunarvöru, fatnað, aukahluti og ilmvötn alls staðar að úr heiminum“ segir Stefán.
„Það var ótrúlegur heiður að vera valinn til að vinna að þessu risastóra verkefni. Það er mjög góð tilfinning að finna fyrir traustinu og að fá tækifæri til að gefa til baka í verkefni sem stendur manni nærri. Ég er búinn að vera mjög stoltur í þessu ferli og það er búið að vera ótrúlega gaman að vinna með fólkinu í Krabbameinsfélaginu og fá að hafa þau Anton og Lindu með sér í verkefninu, fólk sem ég ber mikla virðingu fyrir og mér þykir líka mjög vænt um. “
Öll þekkja þau Stefán, Anton og Linda glímuna við krabbamein sem aðstandendur, auk þess sem Linda hefur sjálf reynslu af því að hafa fengið krabbamein tvisvar. Hönnunin er því ekki aðeins falleg heldur persónuleg, einlæg og sprottin úr djúpri samstöðu, sem er einmitt áhersla Mottumars í ár.
Mikilvægt að bera skilaboð þakklætis áfram
Hönnunin byggir á orðunum „Takk fyrir“ sem fléttast saman í lifandi og áberandi mynstri og leturgerð. Í þeim felst þakklæti til samfélagsins alls.
„Ég held að það sé bara mikilvægt að bera þessi skilaboð þakklætis áfram. Því að við þurfum öll á þakklæti að halda, að geta sagt takk fyrir og að fá kannski líka þakkir. Ég held að það sé bara ofsalega mikilvægt“ segir Stefán. „Það eru margar tilfinningar sem bærast innra með manni þegar maður er aðstandandi einhvers með krabbamein og þar á meðal er þakklætið. Móðir mín barðist mjög lengi við krabbamein og ég var sérstaklega þakklátur henni fyrir að berjast.“
Viðhafnarútgáfa í þremur litum
Það er ríkir alltaf ákveðin spenna þegar Mottumarssokkar ársins eru kynntir til leiks og margir bíða í ofvæni eftir að sjá hönnun ársins, næla sér í par og skella sér í sokkana. Annað árið í röð bjóðum við upp á þrjár viðhafnarútgáfur af Mottumarssokkunum, bleika, græna og brúna.
„Viðhafnarsokkarnir eru kannski svona aðeins skemmtilegir til að geta breytt aðeins til, því fólk notar sokka svolítið eftir tilefnum,“ segir Stefán. „Almennu sokkarnir passa við öll tilefni, en ef mann langar kannski að tjá sig aðeins með litum þá er eiginlega fullkomið að geta farið í bleiku sokkana eða grænu. Brúnu sokkarnir eru síðan svolítið dressí.“
Sala hefst 25. febrúar í verslun og vefverslun Krabbameinsfélagsins, í Stefánsbúð, Laugavegi 7, og á hátt í 400 sölustöðum um land allt. Sölutímabilið er út 22. mars.
- Mottumarssokkarnir koma í stærðum 42-47 og 36-41 og kosta 3.500 kr.
- Í ár koma Mottumarssokkarnir einnig í barnastærðum, 26-30 og 31-35, og kosta 2.900 kr. Barnasokkarnir eru einungis fáanlegir í verslun og vefverslun Krabbameinsfélagsins.
- Viðhafnarútgáfurnar koma í þremur litum, bleiku, grænu og brúnu og koma í stærðum 42-47 og 36-41, og kosta 3.900 kr.
Dropp býður fríar sendingar þegar verslað er í vefverslun Krabbameinsfélagsins, meðan á átakinu stendur, á alla afhendingarstaði sína.
