Hjólað í vinnuna og Gott og einfalt sameina krafta sína
Hreyfing og næring fara vel saman – og nú hafa Gott og einfalt og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sameinað krafta í tengslum við átakið Hjólað í vinnuna.
Samstarfið var kynnt við setningu átaksins þriðjudaginn 5. maí í Elliðaárstöð þar sem veðrið lék við gesti og góð stemning ríkti. Þar fluttu meðal annars ávörp Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ, Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkur ásamt verkefnastjórum matarvefsins Gott og einfalt, þeim Birgittu Lind Vilhjálmsdóttur og Gunnhildi Sveinsdóttur (hjá SÍBS).
Markmiðið með samstarfinu er hvetja fólk til hreyfingar og auðvelda val á hollum mat í dagsins önn. Með einföldum uppskriftum, vikumatseðlum og hvetjandi skilaboðum viljum við styðja við góðar daglegar venjur sem nýtast öllum.
Vikumatseðill í tilefni af Hjólað í vinnuna
Í tilefni af Hjólað í vinnuna hefur ÍSÍ sett saman sérstakan vikumatseðil á Gott og einfalt með hugmyndum að morgunmat, hádegismat, kvöldmat og millimálum. Þar er lögð áhersla á næringarríkar og einfaldar máltíðir sem hjálpa til við að halda góðri orku yfir daginn og gefa orku fyrir hjólatúrinn. Hægt er að púsla matseðlinum saman eftir hentisemi og hér má finna vikumatseðilinn í heild sinni.
Lítil skref sem skipta máli
Samstarfið byggir á einfaldri hugsun – lítil skref skipta máli. Hvort sem við hjólum í vinnuna, skipuleggjum vikuna með góðum mat eða prófum nýja næringarríka uppskrift, þá getur margt smátt haft jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan.
Gott og einfalt er samstarfsverkefni Krabbameinsfélag Íslands og SÍBS, í samvinnu við embætti landlæknis, sem hefur það að markmiði að hafa jákvæð áhrif á mataræði og heilsu þjóðarinnar með því að gera holla og næringarríka kosti aðgengilega öllum. Á vefnum má finna einfaldar, næringarríkar og hagkvæmar uppskriftir sem allar taka mið að opinberum ráðleggingum um mataræði.
