Hannar þú Mottumarssokkana 2027?
Leit er hafin að hönnuði Mottumarssokkana 2027. Frestur til að senda inn tillögur er til og með 28. apríl.
Einstakt tækifæri fyrir einstaklinga og/eða fyrirtæki til að taka þátt í verkefni með stórt hjarta og styðja í leiðinni við fjölbreytt starf Krabbameinsfélagsins sem allt miðar að því að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og njóti lífsins – með og eftir krabbamein.
- Ef þú hefur áhuga fylltu út formið hér.
- Ef þú hefur einhverjar spurning sendu tölvupóst á mottumars@krabb.is.
Mottumarssokkarnir 2026 - hönnun innblásin af þakklæti
Mottumarssokkarnir í ár voru einstaklega litríkir og fallegir. Þeir voru hannaðir af Stefáni Svan Aðalheiðarsyni í Stefánsbúð í samstarfi við grafísku hönnuðina Lindu Loeskow og Anton Kaldal Ágústsson. Öll þekkja þau Stefán, Anton og Linda glímuna við krabbamein sem aðstandendur, auk þess sem Linda hefur sjálf reynslu af því að hafa fengið krabbamein tvisvar. Hönnunin er því ekki aðeins falleg heldur persónuleg, einlæg og sprottin úr djúpri samstöðu, sem er einmitt áhersla Mottumars í ár.
- Stefán var valinn úr hópi tæplega 100 aðila sem sóttu um að fá að hanna sokkanna.
Mottumarssokkarnir 2025 úr smiðju Prins Póló
Mottumarssokkarnir 2025 voru hannaðir af Berglindi Häsler, ekkju Svavars Péturs og eiganda Havarí, í samstarfi við Björn Þór Björnsson (Bobby Breiðholt). Björn hefur undanfarin ár tekið að sér að viðhalda safni myndrænna sköpunarverka Svavars Péturs sem lést úr krabbameini árið 2022. Svavar Pétur var best þekktur sem tónlistarmaðurinn Prins Póló.
AS WE GROW hannaði Mottumarssokkana 2024
Þær Gréta Hlöðversdóttir, Snæfríð Þorsteins og Kamilla Henriau voru hugmyndasmiðirnir og hönnuðirnir á bakvið sokkana. Hönnun sokkanna byggir á Mottumarsskegginu sem tók á sig abstrakt yfirbragð og myndaði glaðlegt símynstur í hinu hefðbundna litaþema átaksins. Símynstrið vísar í þá staðreynd að einn af hverjum þremur karlmönnum greinist einhvern tímann á lífsleiðinni með krabbamein.
66°Norður hannaði Mottumarssokkana 2023
Heiðurinn af hönnun sokkana var í höndum 66°Norður sem fengu Þórdísi Claessen, grafískan hönnuð og fyrrverandi starfsmann fyrirtækisins, í lið með sér. Innblásturinn var hafið sem spilar stórt hlutverk í sögu fyrirtækisins og sögu íslensku þjóðarinnar. Unnið var með fánalitina með aðaláhersluna á bláu tónanna til þess að ná ákveðinni dýpt sem býr sjónum. Hællinn, rauða baujan í ólgusjónum er svolítið vegvísirinn sem sjómenn og Íslendingar þekkja vel, þegar við sjá baujuna erum við á réttum stað.
