Beint í efni
Gamlárshlaup ÍR

Gaml­árs­hlaup ÍR - Hlaup­um til góðs

Gamlárshlaup ÍR er skemmtileg blanda af keppnishlaupi, áramótaskemmtun og fjölskyldusamveru þar sem einstaklingar með ólík markmið og bakgrunn koma saman. Hlaupið er í ár samstarfverkefni frjálsíþróttadeildar ÍR og Krabbameinsfélagsins og því geta þátttakendur hlaupið til styrktar góðu starfi félagsins.

Gleðin er ávallt við völd í Gamlárshlaupi ÍR, hvernig sem viðrar, en auk hefðbundinna keppnisbúninga mæta fjölmargir til leiks íklæddir grímubúningum. Á meðan sumir leggja kapp á að bæta sinn besta tíma á hraðri og flatri braut þá berjast aðrir um að hljóta verðlaun fyrir frumlegasta búninginn eða einfaldlega hafa gaman af.

Í Gamlárshlaupinu í ár á Frjálsíþróttadeild ÍR í samstarfi við Krabbameinsfélagið og því geta þátttakendur hlaupið til styrktar góðu starfi félagsins auk þess sem almenningi gefst kostur á að heita á hlaupara og leggja þannig baráttunni gegn krabbameini lið. Áheitasíða Krabbameinsfélagsins er hér.

Hlaupið er haldið á gamlársdag, 31. desember og er ræst stundvíslega klukkan 12:00 frá Hörpunni. Rásmarkið er á Sæbrautinni fyrir utan Hörpuna. Þátttakendur eru hvattir til þess að mæta tímanlega á keppnisstað og hafa hugfast að það getur tekið tíma að leggja bílum í miðbæ borgarinnar. Ráðlagt er að leggja í bílastæði Hörpunnar meðan rúm leyfir.

Skráðu þig í hlaupið hér.

Vegalengd

Hlaupið er 10km en einnig er boðið uppá 3 km skemmtiskokk. Ekki er tímataka í skemmtiskokki.

Verðlaun

Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu 3 í karla og kvennaflokki í 10 km auk þess sem veitt eru verðlaun fyrir fyrsta sæti í aldursflokkum karla og kvenna.

Aldursflokkarnir eru eftirfarandi:

  • 12-14 ára
  • 15-17 ára
  • 18-29 ára
  • 30-39 ára
  • 40-49 ára
  • 50-59 ára
  • 60-69 ára
  • 70-79 ára
  • 80 ára og eldri

Einnig eru veitt verðlaun fyrir búninga í nokkrum flokkum.Glæsileg útdráttarverðlaun eru dregin úr nöfnum allra þátttakenda.


Afhending gagna verður í Sportvörum Dalvegi 32a daginn fyrir hlaup kl 12-18. Á hlaupdag verður hægt að nálgast gögn í Hörpu frá kl 9:00.

Fatahengi og salerni eru í Hörpu.

Dagskrá hlaupdags

  • 9:00-11:00 Afhending gagna.
  • 12:00 Hlaupið ræst. 
  • 13:00 Verðlaunaafhending.
  • 13:30 Tímatöku hætt.

    10 km hlaupið er framkvæmt samkvæmt reglum Frjálsíþróttasambands Íslands og viðurkennt af sambandinu til skráningar úrslita á afrekaskrá. Hlaupaleiðin er mæld samkvæmt stöðlum World Athletics.
Kort af hlaupaleið Gamlárshlaup 2024