Beint í efni
Gamlárshlaup ÍR 2024

Gaml­árs­hlaup ÍR 2025 - Hlaup­um til góðs

Gamlárshlaup ÍR er skemmtileg blanda af keppnishlaupi, áramótaskemmtun og fjölskyldusamveru þar sem einstaklingar með ólík markmið og bakgrunn koma saman. Hlaupið er í ár samstarfverkefni frjálsíþróttadeildar ÍR og Krabbameinsfélagsins og því geta þátttakendur hlaupið til styrktar góðu starfi félagsins.

Hlaupið er haldið á gamlársdag, 31. desember og er ræst stundvíslega klukkan 12:00 frá Hörpunni. Rásmarkið er á Sæbrautinni fyrir utan Hörpuna. Þátttakendur eru hvattir til þess að mæta tímanlega á keppnisstað og hafa hugfast að það getur tekið tíma að leggja bílum í miðbæ borgarinnar. Ráðlagt er að leggja í bílastæði Hörpunnar meðan rúm leyfir.

Gleðin er ávallt við völd í Gamlárshlaupi ÍR, hvernig sem viðrar, en auk hefðbundinna keppnisbúninga mæta fjölmargir til leiks íklæddir grímubúningum. Á meðan sumir leggja kapp á að bæta sinn besta tíma á hraðri og flatri braut þá berjast aðrir um að hljóta verðlaun fyrir frumlegasta búninginn eða einfaldlega hafa gaman af.

Í Gamlárshlaupinu í ár á Frjálsíþróttadeild ÍR í samstarfi við Krabbameinsfélagið og því geta þátttakendur hlaupið til styrktar góðu starfi félagsins auk þess sem almenningi gefst kostur á að heita á hlaupara og leggja þannig baráttunni gegn krabbameini lið. Áheitasíða Krabbameinsfélagsins er hér.