Fyrstu niðurstöður úr rannsókn um lífsgæði eftir greiningu krabbameins – hlekkur á málþing
Ný rannsókn veitir betri innsýn í líðan og lífsgæði fólks með og eftir krabbamein og mun nýtast til að sníða úrræði betur að þörfum fólks.
Á málþinginu Árangur í krabbameinsmeðferð - hvað getum við bætt sem fram fór föstudaginn 27. mars, voru kynntar fyrstu niðurstöður úr rannsókninni Lífsgæði eftir greiningu krabbameins. Krabbameinsfélagið stendur fyrir rannsókninni ásamt Háskóla Íslands og Landspítalanum. Nú er rétt um eitt ár síðan gagnasöfnun í rannsóknina hófst, en samtals fengu 16.000 einstaklingar boð um þátttöku. Þátttaka í rannsókninni var afar góð, bæði hjá fólki sem hefur fengið krabbamein og meðal almennings sem boðið var að taka þátt sem hluti af samanburðarhópi.
Á málþinginu, sem er hluti af ráðstefnuröðinni Heilsan okkar hjá Háskóla Íslands, kynnti Dr. Sigríður Gunnarsdóttir, forstöðumaður Rannsóknaseturs – Krabbameinsskrár og ábyrgðarmaður rannsóknarinnar, fyrstu niðurstöður. Ljóst er að þær munu gefa mun betri innsýn í líðan og lífsgæði fólks með og eftir krabbamein, í samanburði við sömu þætti meðal almennings. „Við þurfum að kafa dýpra og skilja betur hvaða hópar eru að kljást við vandamál og hverjir eru í ákveðinni áhættu. Markmiðið er að geta einstaklingssniðið þjónustuna betur og jafnvel þróað ný úrræði eða bætt þau sem fyrir eru,“ segir Sigríður.
Mörg sóknarfæri til staðar
Eins og spáð hafði verið fyrir reyndust lífsgæði þeirra sem eru í meðferð vegna krabbameins vera lakari en þeirra sem lokið hafa meðferð, sem aftur eru lakari heldur en almennings sem aldrei hefur fengið krabbamein. Niðurstöðurnar varpa líka ljósi á að margir þeirra sem lokið hafa meðferð vegna krabbameins eru með þarfir fyrir frekari heilbrigðisþjónustu og aðeins hluta þeirra er mætt. Það eru því mörg sóknarfæri í að byggja upp og þróa þjónustu til að mæta þörfum þeirra sem lokið hafa meðferð.
Mikil vinna er fyrir höndum að greina gögnin enn frekar og miðla niðurstöðum rannsóknarinnar. Við hjá Krabbameinsfélaginu þökkum öllum sem tóku þátt og lögðu þannig sitt af mörkum til að bæta líðan og lífsgæði fólks með og eftir krabbamein.
