Beint í efni

Fund­ar­boð: Aðal­fundur Krabba­meins­félagsins

Hér með er boðað til aðalfundar Krabbameinsfélagsins sem fer fram laugardaginn 25. maí kl. 13 í húsnæði félagsins að Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Hádegisverður fyrir aðalfundarfulltrúa verður í boði kl. 12 en aðalfundurinn hefst kl. 13.

Dagskrá fundarins er samkvæmt lögum félagsins:

Sækja fundarboð sem PDF-skjal

Skýrsla stjórnar fyrir síðastliðið starfsár.Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.Skýrslur aðildarfélaga lagðar fram til kynningar.Kynning á starfs- og fjárhagsáætlun til tveggja ára.Lagabreytingar.Stjórnarkjör.Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga, og eins til vara, til eins árs.Kosning fimm manna uppstillingarnefndar.Önnur mál.

Reykjavík 24. apríl 2024

Hlíf Steingrímsdóttir,
formaður Krabbameinsfélags Íslands

Hverju starfandi aðildarfélagi er heimilt að senda einn fulltrúa á aðalfund fyrir hverja 200 félagsmenn, eða brot úr þeim fjölda, þó aldrei fleiri en sex fulltrúa. Jafnframt hafa stjórnarmenn Krabba­meinsfélags Íslands, sem ekki eru kjörnir fulltrúar síns aðildarfélags, sem og starfsmenn KÍ, seturétt á aðalfundi með málfrelsi. 

Sækja fundarboð sem PDF-skjal Sækja fundarboð sem JPG-skjal