Beint í efni

Frá­bær þátt­taka í Skegg­keppni Mottu­mars 2024

Þátttakendur í Skeggkeppni Krabbameinsfélagsins þetta árið voru 360 talsins og alls söfnuðust rétt rúmlega 7,3 milljónir króna. Krabbameinsfélagið þakkar öllum þeim sem tóku þátt og öllum sem styrktu.

Skeggkeppnin er fastur liður í Mottumars, árlegu árvekni- og fjáröflunarátaki Krabba­meinsfélagsins. Þátttakendur eru hvattir til að skarta mottu og safna áheitum frá vinum, vandamönnum og þjóðinni allri. Söfnunarfé rennur óskipt til Krabbameinsfélagsins og nýtist m.a. til að veita endurgjaldslausa ráðgjöf og stuðning til krabbameinsgreindra og aðstandenda þeirra, til íslenskra rannsókna á krabbameinum og til ýmis konar fræðslu og forvarna.

Föstudaginn 5. apríl fór fram verðlauna- og viðurkenningahátíð í húsnæði rakarastofunnar Herramenn í Hamraborg í Kópvogi. Á hátíðinni voru veitt verðlaun til þeirra einstaklinga og liða sem stóðu sig best í söfnunni. Auk var veitt viðurkenning fyrir öflugt framlag til skeggkeppninnar undanfarin ár og verðlaun veitt þeim sem dregin var út í Skeggleiknum á Facebook.

Krabbameinsfélagið þakkar rakarastofunni Herramenn, FlyOver IcelandBullseye Reykjavík og Blómaval fyrir samstarfið, stuðninginn og veitta vinninga og auðvitað öllum þeim sem tóku þátt og styrktu.

Í sameiningu vinnum við að þeim markmiðum að draga úr fjölda krabbameinstilvika, fækka dauðsföllum af völdum krabbameina og bæta lífsgæði þeirra sem greinast með krabbbamein og aðstandenda þeirra.

Einstaklingskeppni – úrslitBrynjar Ögmundsson – safnaði kr. 380.000Valdimar Kjartansson – safnaði kr. 333.000Tryggvi Björn Guðbjörnsson – safnaði kr. 200.000Liðakeppni – úrslitGóðgerðarsjóður Round Table – safnaði kr. 765.244Mottumass – safnaði kr. 508.967Snæfell Crew – safnaði kr. 474.000Mottuleikur á FacebookGuðni HeimissonSérstök viðurkenningJón Baldur Bogason fyrir framlag sitt og þátttöku í skeggkeppni Mottumars í gegnum árin

Brynjar Ögmundsson varð hlutskarpastur í einstaklingskeppninni (tv.) og Góðgerðarklúbbur Round Table stóð sig best í liðakeppninni.

Andri Týr frá rakarastofunni Herramenn (tv.). Jón Baldur Bogason (th.) hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir framlag sitt til skeggkeppni Mottumars í gegnum árin.

https://www.youtube.com/watch?v=_6tCNnNNPv4

Myndband frá afhendingu verðlauna

Hvernig er söfnunarfé varið?

Fjárhagslegur stuðningur almennings og fyrirtækja er grundvöllur þess að Krabbameinsfélagið geti starfað, því starfsemin byggir á sjálfsaflafé. Stuðningur einstaklinga og fyrirtækja við átakið er ómetanlegur og í sameiningu vinnum við að enn betri árangri varðandi það að draga úr fjölda krabbameinstilvika, fækka dauðsföllum af völdum krabbameina og að bæta lífsgæði þeirra sem greinast með krabbamein og aðstandenda þeirra.

Þitt framlag styður við:Endurgjaldslausa ráðgjöf hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og félagsráðgjafa og  stuðning við þá sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra.Íslenskar rannsóknir á krabbameinum sem snúa meðal annars að orsökum krabbameina, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga.Ýmis konar forvarnafræðslu, námskeið og starfsemi sem miðar m.a. að því að draga úr líkum á krabbameinum og bæta lífsgæði hjá þeim sem greinast með krabbamein.Afnot af íbúðum fyrir sjúklinga og aðstandendur, hagsmunagæslu og liðsinni á 8 þjónustuskrifstofum um land allt.

Kynntu þér starfsemi Krabbameinsfélagsins nánar á www.krabb.is.