Forsetahjónin tóku á móti fyrstu Mottumarspörunum
Forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur og eiginmanni hennar Birni Skúlasyni voru í annað sinn afhent fyrstu sokkapörin sem seld eru til styrktar Krabbameinsfélaginu í Mottumars.
Móttökurnar á Bessastöðum voru að vanda mjög góðar þegar Stefán Svan Aðalheiðarson, hönnuður Mottumarssokkanna í ár, afhenti forsetahjónunum fyrstu pörin. Stuðningur forseta Íslands við árvekniátök Krabbameinsfélagsins er ómetanlegur, en áherslur forseta á mikilvægi samstöðu og samfélags ríma vel við áherslur átaksins í ár. Forsetinn þakkaði félaginu fyrir að opna á umræðuna og undirstrikaði mikilvægi þess að enginn upplifi einmanaleika og einangrun í erfiðum veikindum.

Takk fyrir sokkana
Mottumarssokkarnir í ár eru einstaklega litríkir og fallegir. Þeir eru hannaðir af Stefáni Svan í Stefánsbúð í samstarfi við grafísku hönnuðina Lindu Loeskow og Anton Kaldal Ágústsson. Stefán var valinn úr hópi tæplega 100 aðila sem sóttu um að fá að hanna sokkanna.
Hönnunin byggir á orðunum „Takk fyrir“ sem fléttast saman í lifandi og áberandi mynstri og leturgerð. Í þeim felst þakklæti til samfélagsins alls, en þó sérstaklega til þeirra sem takast á við krabbamein og aðstandenda sem standa þétt við bakið á þeim.
Öll þekkja þau Stefán, Anton og Linda glímuna við krabbamein sem aðstandendur, auk þess sem Linda hefur sjálf reynslu af því að hafa fengið krabbamein tvisvar. Hönnunin er því ekki aðeins falleg heldur persónuleg, einlæg og sprottin úr djúpri samstöðu, sem er einmitt áhersla Mottumars í ár.
Mottumars ein af lykilstoðunum
Allur ágóði af sölu Mottumarssokkanna rennur til starfsemi Krabbameinsfélagsins sem miðar að því að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og líði betur. Öll starfsemi félagsins byggir á stuðningi almennings og fyrirtækja og Mottumars er ein af lykilstoðum hennar. Saman tryggjum við að enginn þurfi að standa einn.
- Sala hefst 25. febrúar í verslun og vefverslun Krabbameinsfélagsins, í Stefánsbúð, Laugavegi 7, og á hátt í 400 sölustöðum um land allt. Sölutímabilið er út 22. mars.



Mynd á forsíðu fréttar: Karítas Sveina Guðjónsdóttir.
