Málþing: Eftir brjóstakrabbamein - Óttinn við að endurgreinast
Bleikt málþing um brjóstakrabbamein á vegum Krabbameinsfélags Íslands, Brjóstheilla – Samhjálpar kvenna og Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins.
Málþingið verður þriðjudaginn, 13. október, kl.17-18:30 í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8. Málþinginu verður einnig streymt. Öll velkomin.
Málþingið ber yfirskriftina Eftir brjóstakrabbamein - Óttinn við að endurgreinast og fjallar um óttann við að greinast aftur með brjóstakrabbamein, sem margir upplifa eftir að meðferð lýkur.
Dagskrá
- Opnun málþings - Lára Sif Lárusdóttir, frá Brjóstaheillum – Samhjálp kvenna
- Að vera við borðið – mikilvægi norræns samstarfs fyrir Brjóstaheill - Ásta Einarsdóttir, frá Brjóstaheillum -Samhjálp kvenna
- Lífsgæðarannsóknin: óttinn við endurkomu - Nanna Margrét Kristinsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknasetri - Krabbameinsskrá hjá Krabbameinsfélaginu.
- Óttinn við að endurgreinast - líðan og bjargráð - Þorri Snæbjörnsson sálfræðingur og teymisstjóri hjá Krabbameinsfélaginu
- Þarf ég að hafa áhyggjur ? Þegar líkamleg einkenni vekja ótta eftir brjóstakrabbamein - Kristín Sigurðardóttir sérfræðingur í hjúkrun, Brjóstamiðstöð Landspítala
- Reynslusaga: Að sættast við óttann - Inga Þórisdóttir
- Reynslusaga: Ég er‘ann! - Helena Bragadóttir
- Málþingsslit - Lára Sif Lárusdóttir
Fundarstjóri: Brynja Baldursdóttir, forstjóri Greiðslumiðlunar Íslands.
