Norrænu krabbameinsfélögin kalla eftir breytingum á tóbaksreglugerðum
Samtök norrænu krabbameinsfélaganna (NCU) hvetja Evrópusambandið til að endurskoða tóbaksreglugerðir sínar og tryggja að þær nái einnig yfir nýjar nikótínvörur.
Í dag sendu Samtök norrænu krabbameinsfélaganna (NCU) bréf til framkvæmdastjóra Evrópusambandsins, Ursulu von der Leyen, og Olivér Várhelyi, framkvæmdastjóra heilbrigðismála, þar sem þau eru hvött til að beita sér fyrir því að tóbaksreglugerðir ESB verði tafarlaust endurskoðaðar.
Tillögur NCU eru í takt við markmið krabbameinsáætlunar ESB (Europe's Beating Cancer Plan) og ganga út á að tryggja að reglugerðir nái bæði yfir tóbaks- og nikótínvörur. Þær fela meðal annars í sér verðhækkanir, bann við allri beinni og óbeinni markaðsetningu og netsölu, bann við notkun bragðefna í tóbaks- og nikótínvörum og að teknar verði upp einlitar og einsleitar umbúðir.
Markaðssetningu beint að ungu fólki
Tóbaksnotkun er helsti áhættuþáttur krabbameina og eykur líkur á að minnsta kosti 15 tegundum krabbameina. Góður árangur hefur náðst í að draga úr reykingum á Norðurlöndum undanfarna áratugi, en minni reykingar hafa hvatt tóbaksframleiðendur til að þróa nýjar vörur, t.d. nikótínpúða og rafrettur, til að tryggja sér viðskiptavini til framtíðar.
Tóbaksiðnaðurinn beinir markaðsetningu nýrra vara markvisst að unglingum og ungu fólki, m.a. í gegnum samfélagsmiðla. Nú er staðan sú að nikótínpúðanotkun ungs fólks á Norðurlöndunum er hlutfallslega hæst á Íslandi. Þrátt fyrir að rannsóknir á langtímaáhrifum nýrra nikótínvara séu enn takmarkaðar er ljóst að börn og unglingar eru sérstaklega viðkvæm fyrir skaðlegum áhrifum nikótíns. Þá benda niðurstöður rannsókna einnig til þess að þeir sem nota rafrettur eru allt að þrisvar sinnum líklegri til að byrja að reykja.
Stórar áskoranir blasa við
Nauðsynlegt er að bregðast við alvarlegum veikleikum í tóbaksregluverki ESB til að loka glufum sem tóbaksiðnaðurinn nýtir sér. Hér á landi náðist gríðarmikill árangur í að draga úr reykingum á sínum tíma og þann árangur sjáum við meðal annars í lækkuðu nýgengi lungnakrabbameins og dánartíðni af völdum þess. Stórar áskoranir blasa við vegna nýrra tóbaks- og nikótínvara og mikilvægt er að bregðast við til að vernda heilsu ungs fólks og komandi kynslóða.
