Bleikir Styrkleikar við rætur Úlfarsfells
Á Bleika deginum, 21. október verða Styrkleikar við rætur Úlfarsfells. Að þeim standa Krabbameinsfélagið og félagarnir Kjartan Long og Albert Þorbergsson, sem halda úti verkefninu 100 Úlfarsfellstindar.
Á Styrkleikunum komum við saman, göngum og sýnum samstöðu með þeim sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra. Starfsfólk Krabbameinsfélagsins verður á staðnum frá kl. 17:00 - 20:00 og tekur vel á móti öllum. Boðið verður upp á heitt kakó og tækifæri til að spjalla og eiga góða stund saman. Þar verður einnig hægt að kaupa kerti fyrir Ljósastundina.
Styrkleikarnir hafa verið haldnir áður á Úlfarsfelli en í ár verða þeir með breyttu sniði, þannig að sem flestir geti tekið þátt. Við byrjum að ganga kl. 17:00 og það verða tvær gönguleiðir í boði og báðar mynda þær slaufu. Önnur gönguleiðin „Sparislaufan" fer á topp Úlfarsfellsins en „Bleika slaufan" er við rætur fellsins og ætti að henta flestum. Þú velur þá leið sem hentar þér og gengur á þínum eigin hraða. Fyrir seinastu ferðina kl. 19:30 söfnumst við saman á bílastæðinu.

Ljósastund kl. 19:30
Við göngum saman að krossgötum gönguleiða dagsins þar sem Ljósastundin verður haldin. Þar kveikjum við á kertum og eigum saman fallega stund þar sem við hugsum til þeirra sem hafa greinst með krabbamein, þökkum fyrir þau sem eru enn hjá okkur og minnumst þeirra sem við höfum misst. Hlýðum á hugvekju frá Þorra Snæbjörnssyni, sálfræðingi og teymisstjóra Krabbameinsfélagsins, og heyrum reynslusögu Rósu Bjargar Karlsdóttur, sem minnir á mikilvægi þess að Sjá sig.
Að því loknu hvetjum við fólk til að halda áfram göngu sinni eftir þeirri leið sem því hentar best, þannig munum við saman lýsa upp slaufurnar. Kjartan og Albert leiða göngu upp á Úlfarsfell og tryggja að enginn verði skilinn eftir.
Til að gæta fyllsta öryggis og í leiðinni mynda táknræna ljósakeðju mælumst við til að allir komi með ljós til að lýsa leiðina upp og niður Úlfarsfellið.
Við vonumst til að sjá sem flesta, fjölskyldur, vini, samstarfsfólk og alla sem vilja sýna stuðning og samstöðu með þeim sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra.

Kjartan og Albert, sem margir þekkja úr verkefninu 100 Úlfarsfellstindar, munu leiða göngu á topp Úlfarsfells. Þeir félagar hafa í gegnum árin hvatt fjölda fólks til útivistar og hreyfingar á fjallinu og vilja nú nýta kraftinn í göngusamfélaginu til að sameina fólk með fallegri samverustund og sýna þeim stuðning sem þekkja krabbamein af eigin raun.
Krabbameinsfélagið er í samstarfi við Global Relay for Life, samtök í eigu ameríska krabbameinsfélagsins, til þess að geta haldið viðburðinn Relay for Life hér á landi. Viðburðurinn hlaut íslenska nafnið Styrkleikarnir, en það er orðaleikur og minnir okkur á styrkinn sem við finnum við það að ganga saman til að sýna samstöðu með fólki sem þekkir krabbamein af eigin raun.
Relay for Life fer fram árlega á yfir 5.000 mismunandi stöðum í yfir 30 löndum um allan heim. Hátt í 10 milljónir taka þátt í viðburðinum á hverju ári og fer sá hópur stækkandi.
