Bleik stemning í Perlunni – myndir frá Opnunarhátíð Bleiku slaufunnar
Opnunarhátíð Bleiku slaufunnar fór fram 30. september í Perlunni, sem var böðuð bleikum ljóma í tilefni af átakinu.
Húsið opnaði kl. 17:30 með léttum veitingum og voru margir sem nýttu sér tækifærið til að skoða þær glæsilegu sýningar sem Perlan býður upp á. Gestir kynntu sér auk þess vörur og þjónustu samstarfsaðila Bleiku slaufunnar undir ljúfri djasstónlist Tríósins Fjarkanna.
Stórglæsileg dagskrá hófst kl. 19:00 á sviðinu á fimmtu hæð, með magnaðri innkomu Ólafíu Hrannar sem var kynnir kvöldsins. Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, ávarpaði síðan gesti og fór yfir áherslur átaksins, en í ár hvetjum við konur til að vera vakandi fyrir einkennum sem bent geta til krabbameins undir yfirskriftinni Sjáðu þig. Frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, heiðraði því næst samkomuna og tók formlega við Bleiku slaufunni úr höndum nöfnu sinnar.



Tanja Levý og Jökull Jónsson, hönnuðir Bleiku slaufunnar í ár, sögðu frá hugmyndinni á bak við slaufuna, auk þess sem gestir fengu að horfa á myndband sem lýsti hönnunarferlinu. Auglýsing Bleiku slaufunnar var jafnframt frumsýnd, en þar segir frá ungri konu í amstri dagsins, sem frestar því að sjá sig og láta athuga einkenni sem valda henni þó greinilega áhyggjum.




Því næst stigu á stokk nokkrar af skærustu tónlistarstjörnum landsins. Páll Óskar, Ragnhildur Gísladóttir og Halldór Gunnar, Sigríður Thorlacius og Valdimar ásamt Ómari Guðjónssyni fluttu nokkur vel valin lög við mikinn fögnuð viðstaddra. Kvöldinu lauk síðan með óvæntu dansatriði frá nemendum Dansstúdíós World Class.

Við viljum þakka Perlunni og öllum þeim fjölmörgu sem lögðu sitt af mörkum til að gera kvöldið ógleymanlegt. Að auki þökkum við öllum sem sáu sér fært að mæta og fagna kvöldinu með okkur. Við látum fylgja með nokkrar myndir frá kvöldinu. Á facebooksíðu Bleiku slaufunnar má nálgast enn fleiri myndir.
Sjáumst að ári.




