Bandarískur golfari spilar í sólarhring fyrir Krabbameinsfélagið
Jim Smalley missti bæði móður sína og tengdamóður úr brjóstakrabbameini og tvinnar nú saman fjáröflun, vitundarvakningu og hreyfingu.
Dagana 23. til 24. júní næstkomandi ætlar bandaríski golfarinn Jim Smalley að spila golf í 24 tíma samfleytt á Jaðarsvelli á Akureyri, nyrsta 18 holu golfvelli í heimi. Markmið hans er að auka vitundarvakningu um brjóstakrabbamein og safna um leið áheitum til styrktar tveimur krabbameinsfélögum; American Cancer Society og Krabbameinsfélaginu. Félögin urðu fyrir valinu vegna þess að þau bjóða stuðning og fræðslu og veita fjármagni til rannsókna á brjóstakrabbameinum.
Með verkefninu heiðrar Jim minningu móður sinnar og tengdamóður sem báðar létust úr brjóstakrabbameini, en að auki hefur frænka hans einnig fengið brjóstakrabbamein. Hann hefur því mjög persónulega tengingu við málstaðinn og þykir mikilvægt að leggja sitt af mörkum.
Saman getum við heiðrað minningu látinna ástvina, stutt þá sem nú berjast og veitt von um framtíðina.
Við óskum Jim velfarnaðar um leið og við þökkum honum kærlega fyrir framtakið og fyrir að velja að styðja starf félagsins með þessum hætti.



Mynd t.v.: Móðir Jim; Efri mynd t.h.: Jim ásamt móður sinni; Neðri mynd t.h.: Jim spilar golf.
