Aukinn réttur foreldra til sorgarleyfis
Mikilvægum áfanga var náð á dögunum þegar samþykktar voru breytingar á lögum um sorgarleyfi. Lögin ná nú einnig yfir foreldra sem missa maka og eru til staðar fyrir syrgjandi börn sín. Krabbameinsfélagið fagnar breytingunni, sem félagið hefur kallað eftir undanfarin ár.
Með tilkomu laga um sorgarleyfi fyrir foreldra sem missa barn voru viðurkennd áhrif sorgar vegna barnsmissis á fjölskyldur í heild. Áður en lögin komu til var sjaldnast annað í boði að bíta á jaxlinn, reiða sig á velvild vinnuveitenda eða jafnvel nýta veikindarétt. Frá ársbyrjun 2023 hafa foreldrar hins vegar átt rétt á sex mánaða leyfi í kjölfar andláts til að fóta sig í nýjum veruleika, sem stuðlar meðal annars að farsælli endurkomu þeirra á vinnumarkað síðar meir.
Það er ekki síður áfall fyrir fjölskyldur þegar annað foreldri fellur frá, jafnvel eftir langvarandi og erfið veikindi. Gögn Hagstofunnar um börn undir 18 ára aldri sem missa foreldri sitt sýna að í um 40% tilvika látast ungir foreldrar úr krabbameinum. Eftirlifandi foreldrar eru í þeirri krefjandi stöðu að takast á við makamissi á sama tíma og þeir þurfa að vera til staðar og veita syrgjandi börnum mikilvægan stuðning.
Í september 2022 skoraði Krabbameinsfélagið á félags- og vinnumálaráðherra og þingmenn alla að víkka út lög um sorgarleyfi til að auðvelda foreldrum að sinna þessu hlutverki. Með fyrrnefndum breytingum á lögunum eiga þessir foreldrar nú einnig rétt á sex mánaða leyfi. Krabbameinsfélagið fagnar því innilega að breytingin sé orðin að veruleika og ekki síður þeirri víðtæku samstöðu sem ríkti um frumvarpið. Það er ánægjulegt að við sem samfélag séum sammála um að fylkja okkur um syrgjandi fjölskyldur og styðja við þær í erfiðum aðstæðum með þessum mikilvæga hætti.
- Hér má nálgast frekari upplýsingar um breytingarnar á rétti foreldra til sorgarleyfis.