Aðalfundarboð 2026
Aðalfundur Krabbameinsfélags Íslands verður haldinn laugardaginn 9. maí 2026 á 4. hæð í Skógarhlíð 8, Reykjavík og hefst kl. 13:00.
Hádegisverður fyrir aðalfundarfulltrúa verður kl. 12:00 en aðalfundarstörf hefjast kl. 13:00.
Dagskrá fundarins er samkvæmt lögum félagsins:
- Skýrsla stjórnar fyrir síðastliðið starfsár.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
- Skýrslur aðildarfélaga lagðar fram til kynningar.
- Kynning á starfs- og fjárhagsáætlun til tveggja ára.
- Lagabreytingar.
- Stjórnarkjör.
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga, og eins til vara, til eins árs.
- Kosning fimm manna uppstilingarnefndar.
- Önnur mál.
Reykjavík 8. apríl 2026,
Hlíf Steingrímsdóttir, formaður
Hverju starfandi aðildarfélagi er heimilt að senda einn fulltrúa á aðalfund fyrir hverja 200 félagsmenn, eða brot úr þeim fjölda, þó aldrei fleiri en sex fulltrúa. Jafnframt hafa stjórnarmenn Krabbameinsfélags Íslands, sem ekki eru kjörnir fulltrúar síns aðildarfélags, sem og starfsmenn KÍ seturétt á aðalfundi með málfrelsi.
- Vinsamlegast skráið fulltrúa á fundinn hér.
