Samstarfsaðilar Mottumars 2026
Mottumars á öfluga samstarfsaðila!

Dropp
Dropp styður viðskiptavini vefverslunar Krabbameinsfélagsins með því að bjóða fríar sendingar í Mottumars á afhendingarstaði Dropp.

TVG Zimsen
TVG-Zimsen styrkja Mottumars með endurgjaldslausum flutningi á Mottumarssokkum til landsins auk þess að flytja þá til söluaðila innanlands.

Icelandair Cargo
Icelandair Cargo flytja Mottumarssokkana til Íslands án endurgjalds.

Bakarameistarinn
15% af völdum vörum renna til Mottumars á Mottudaginn, 19. mars.

Mosfellsbakarí
15% af völdum vörum renna til Mottumars á Mottudaginn, 19. mars.

17 sortir
15% af sérmerktum Mottumarskræsingum renna til Mottumars.

Löður
Hlutfall af allri sölu mánaðarins rennur til Mottumars. Á Mottudaginn, 19. mars, renna 20% af allri sölu óskipt til átaksins.

Kúnígúnd
20% af völdum vörum frá Moomin Arabia renna til Mottumars í mánuðinum.

Heimilistæki
1.000 krónur af hverju seldu Philips hártæki renna til Mottumars í mánuðinum.

Iittala búðin
20% af völdum vörum frá Moomin Arabia renna til Mottumars í mánuðinum.

Salún
15% af seldum handklæðum á salun.is renna til Mottumars í mánuðinum.

Vistvera
Veita 30% afslátt af gjafaöskju með rakvél og rakblöðum. Ágóði sem samsvarar afslætti rennur til Mottumars í mánuðinum.

Bako Verslunartækni
Styrkja átakið með fjárframlagi.

Gísladóttir
Sérhannaður Mottumarsklútur seldur í vefverslun Krabbameinsfélagsins til styrktar Mottumars.

Hafnarfjarðarkirkja
Stendur fyrir málverkauppboði föstudaginn 13. mars til styrktar Mottumars.

Chad Grooming
40% af öllum Chad Grooming x Mottumars vörum rennur til Mottumars í mánuðinum.

Fætur toga
15% af ágóða af sölu á vörumerkinu Mac in a Sac rennur til Mottumars í mánuðinum.

Myrk Store
5% af öllum gólfmottum frá WOUD renna til Mottumars í mánuðinum. Að auki verður 20% afsláttur af mottunum. WOUD leggja sitt af mörkum og láta 2.000 krónur af hverri seldri WOUD vöru frá Myrk Store renna til Mottumars í mánuðinum.

Bláa Lónið
30% af sölu Mineral Mask 30 ml renna til rannsókna- og forvarnastarfs Krabbameinsfélagsins í Mottumars.

Castus
1.000 krónur af hverri mottuhreinsun renna til Mottumars í mánuðinum.

Baxter
10% af öllum seldum vörum í vefverslun renna til Mottumars í mánuðinum.

Lagning
10% af allri veltu í mars rennur til Mottumars.

Arctic Studio
10% af verði keramikhúðunar rennur til Mottumars í mánuðinum. Að auki verður 20% afsláttur veittur.

A4
20% af andvirði sérprentaðrar minnisbókar með merki Mottumars rennur til Mottumars í mánuðinum.