Beint í efni

Mæt­ir Heilsu­vörð­ur Mottu­mars með skemmti­legt pepp á þinn vinnu­stað?

Herferð Mottumars í ár ber nafnið Kallaútkall og byggir á því að um þriðjungur krabbameinstilvika eru lífsstílstengd og hægt er að draga úr líkum á þeim með heilsusamlegum lífsvenjum, þar á meðal reglulegri hreyfingu. Af því tilefni stöndum við fyrir skemmtilegum leik þar sem fyrirtæki skrá sig til leiks og nokkur verða svo dregin út og fá heimsókn á vinnustaðinn frá Heilsuverði Mottumars sem kemur á staðinn á Mottudaginn og verður með skemmtilegt pepp inn í daginn.

Með þessu vill Krabbameinsfélagið auka vitund um mikilvægi daglegrar hreyfingar. Það þarf ekki nema örfáar mínútur á dag og öll hreyfing skiptir máli.

Skráðu þinn vinnustað til leiks hér.Dregið verður, fimmtudaginn 21. mars kl. 15:00 og haft samband við þau fyrirtæki sem detta í lukkupottinn. Um innanhússviðburð er að ræða.

Góðar lífsvenjur minnka líkur á krabbameinum og þar skiptir m.a. máli að við hreyfum okkur reglulega og höldum kyrrsetu í lágmarki. Því erum við nú í Mottumars að hvetja fólk til að hreyfa sig meira. Það er von okkar að „Kallaútkallið“ hjá Reykjavíkurborg muni hvetja aðra vinnustaði til að fylgja fordæminu. Öll hreyfing gerir gagn og það er aldrei of seint að byrja. Gleymum heldur ekki að hafa gaman!

https://youtu.be/DKofbQSpc3c