Beint í efni

Það er list að lifa – með krabba­meini

Í dag, þriðjudaginn 30. september, hefst Bleika slaufan, árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Í ár eiga konur með ólæknandi krabbamein sviðið og við heyrum með þeirra eigin röddum hvernig það er að lifa með krabbameini í fjölda ára og jafnvel áratugi.

Í kvöld, þriðjudaginn 30. september stendur Krabbameinsfélagið fyrir opnunarhátíð Bleiku slaufunnar. Hátíðin markar upphaf árlegs árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélagsins tileinkuðu baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Í Bleiku slaufunni í ár beinum við athyglinni að ólæknandi krabbameinum undir slagorðinu Það er list að lifa með krabbameini.

Á hverju ári greinast að meðaltali 997 konur á Íslandi með krabbamein. Hluti þeirra greinist með ólæknandi krabbamein, en það þýðir að meinið er til staðar en er haldið í skefjum með lyfjagjöf og öðrum meðferðum. Með stöðugum framförum í krabbameinsmeðferðum mun fjöldi þeirra aukast á komandi árum. Í ár viljum við beina athyglinni að þessum hópi og heyra með þeirra eigin röddum hvernig það er að lifa með krabbameini í fjölda ára eða jafnvel áratugi. Því það er svo sannarlega list að lifa með krabbameini. 

Thelma - mynd - a

Vill lifa lífinu í gleði og þakklæti 

Hönnuður slaufunnar í ár er Thelma Björk Jónsdóttir. Hún hefur mjög persónulega tengingu við Bleiku slaufuna, en hún greindist með brjóstakrabbamein með meinvörpum árið 2024 og lifir því með ólæknandi krabbameini. Thelma Björk er menntaður fatahönnuður, listakona og eigandi Thelma design, sem fagnar tuttugu ára starfsafmæli í ár. Thelma Björk vill vera fyrirmynd fyrir aðrar konur sem eru með langvinnt og ólæknandi krabbamein og sýna fram á að það er hægt að lifa lífinu í gleði og þakklæti. 

Thelma Björk segir uppvaxtarárin hafa mótað hana mikið og að henni gangi best að finna samhengi hlutanna þegar hún fær að nota hendurnar til að skapa og skilja. „Það róaði mig sem barn að gera handavinnu með ömmu,“ segir Thelma Björk, en móðuramma hennar, Brynhildur Friðriksdóttir, kenndi henni útsaum, bróderí, hekl og prjón. „Yfir handavinnunni sagði hún mér sögur af sjálfri sér og formæðrum okkar.“

Bleika slaufan báðar 2025

Heiður að vera hluti af arfleifðinni 

Slaufan í ár er rósetta, en Thelma Björk vinnur mikið með þær í sinni hönnun og hefur alltaf verið heilluð af hlutverki þeirra. Þegar hún var að vinna hugmyndavinnuna fyrir Bleiku slaufun leitaði hún í handavinnukisturnar sem hún erfði eftir ömmu sína og efst í einum bunkanum lá tilbúin slaufa eins og skilaboð til hennar. „Ég hugsaði með mér að hún ætlaði að vera með mér í þessu verkefni,“ segir Thelma Björk. „Ég tók slaufuna og gerði hana að minni, en þetta er í rauninni samstarfsverkefni okkar ömmu.“  

Efniviður slaufunnar í ár er textíll og sækir innblástur í handverkshefðina sem er alltumlykjandi í listsköpun Thelmu Bjarkar. Rósettan sjálf táknar verðlaunagrip sem nældur er í hjartastað, tileinkaður öllum þeim hetjum sem lifa með krabbameini. 

Thelmu Björk langaði til að hanna Bleiku slaufuna vegna þess að starfsemi Krabbameinsfélagsins hefur skipt sköpum fyrir hana og fjölskyldu hennar. „Ég elska starf Krabbameinsfélagsins og þjónusta þess hefur hjálpað okkur fjölskyldunni mikið,“ segir Thelma Björk. „Mér finnst mikill heiður að vera hluti af þessari arfleifð, þessum hópi sem fær að hanna slaufuna.“ 

Bleika slaufan forsenda góðra verka 

Bleika slaufan er tækifæri til að veita sýnilegan stuðning öllum þeim sem lifa með krabbameini og aðstandendum þeirra. Kaup á Bleiku slaufunni gera okkur hjá Krabbameinsfélaginu jafnframt kleift að vera öflugur bakhjarl í baráttunni gegn krabbameinum. Allt starf okkar miðar að því að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og njóti lífsins  - með og eftir krabbamein. Stuðningur almennings og fyrirtækja í landinu er forsenda allra þeirra verka. 

Hvar fæst Bleika slaufan?

Undanfarin ár hafa verið framleiddar tvær útgáfur af Bleiku slaufunni; almenna slaufan sem er næla og sparislaufan sem er hálsmen og kemur í takmörkuðu upplagi.  

Kaupa Bleiku slaufuna.

Sparislaufan í ár er gullhúðað koparhálsmen í samlitri keðju með rósbleikum Swarovski kristal og slaufu sem hægt er að losa frá. Litur kristalsins minnir á róskvars og táknar því hjartað um leið og hann kallast á við lit rósettunnar sem næld er í hjartastað. Hálsmenið er í senn stílhreint og fallegt og kemur í afar fallegum gjafaumbúðum.  Sparislaufan hefur oft selst upp á fyrstu dögum átaksins og því er gott að tryggja sér eintak í tíma.

Sparislaufan fæst í verslun og vefverslun Krabbameinsfélagsins og í Mebu skartgripaverslun í Kringlunni og Smáralind.

Bleika slaufan verður í sölu frá 30. september til 25. október í verslun og vefverslun Krabbameinsfélagsins og hjá hátt í 400 söluaðilum um land allt.