Beint í efni
Malthing

Bleikt mál­þing 19. októ­ber um brjósta­krabba­mein

Bleikt málþing um brjóstakrabbamein á vegum Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins og Krabbameinsfélagsins. Málþingið verður í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, fimmtudaginn 19. október kl. 17:00-18:30, streymi í boði.

Málþinginu verður streymt á streymisveitu Krabbameinsfélagsins. Skráning á málþingið hér.
Boðið verður upp á léttar veitingar.

DAGSKRÁ

Setning: Guðrún Kristín Svavarsdóttir, stjórnarkona í Brjóstaheillum – Samhjálp kvenna.

Þátttaka í skimun fyrir brjóstakrabbameini á Íslandi
Álfheiður Haraldsdóttir og Hrefna Stefánsdóttir, sérfræðingar á Rannsókna- og skráningarsetri Krabbameinsfélagsins.

Skrepp í skimun, kynning á átaki til að auka mætingu í brjóstaskimun
Svanheiður Lóa Rafnsdóttir, yfirlæknir á Brjóstamiðstöð Landspítala og sérfræðingur í brjóstaskurðlækningum.

Úr Áttavitanum, reynsla kvenna sem greinst hafa með krabbameinSigrún Elva Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu.

Í kjölfar brjóstakrabbameins:
          Síðbúnar afleiðingar eftir meðferð
          Vigdís Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu.

          Andhormónar – aukaverkanir og aðstoð við sjúklinga
          Þóra Þórsdóttir, sérfræðingur í krabbameinshjúkrun, starfar á Brjóstamiðstöð og er teymisstjóri brjóstateymis 11B Landspítala.

Þróun aukins stuðnings við lok krabbameinsmeðferða á Brjóstamiðstöð Landspítala
Rannveig Björk Gylfadóttir, sérfræðingur í krabbameinshjúkrun, starfar á Brjóstamiðstöð og í endurhæfingarteymi Landspítala fyrir krabbameinsgreinda.

„Það þarf að segja góðar sögur“ - Reynslusaga af því að fá brjóstakrabbamein
Melkorka Matthíasdóttir, jarðfræðingur og leirlistakona.

Samantekt
Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameisfélagsins.

Fundarstjóri: Guðrún Gunnarsdóttir, varaformaður FKA - Félags kvenna í atvinnulífinu og deildarstjóri heilbrigðissviðs Fastus.