Beint í efni

Sum­arið er tím­inn

Er ekki kjörið að reima á sig hlaupaskónna, fara út að hreyfa sig og skrá sig í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka? Þú þarft ekki að vera afrekshlaupari. Allir geta fundið vegalengd við sitt hæfi og farið á sínum hraða. 

Það er alltaf einstök gleði sem einkennir hlaupið - frábær stemming og bros á hverju andliti eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.

Hlaupurum gefst kostur á að hlaupa til styrktar Krabbameinsfélaginu og fer skráning og áheitasöfnun fram á hlaupastyrkur.is.

Við verðum með bás á Fit&Run sýningunni í Laugardalshöll 20. og 21. ágúst. Öll sem hlaupa fyrir Krabbameinsfélagið fá bol merktan félaginu. Hvetjum ykkur til að kíkja við.

Reykjavíkurmaraþon 2025
Reykjavíkurmaraþon 2025
Reykjavíkurmaraþon 2025

Hvatningarstöð Krabbameinsfélagsins verður á sínum stað á Austurströnd 7 (við hliðina á Ísbúð Huppu). Við hvetjum alla til að slást í hópinn og taka þátt í að hvetja hlauparana áfram. 

Maraþon hvatningarstöð