Hlauparáð - Hvetjandi að tilheyra hópi
Við kíktum við á æfingu hjá hlaupahópnum Valur skokk.
Við kíktum við á æfingu hjá hlaupahópnum Valur skokk. Þar hleypur fólk bæði fyrir sig sjálft um leið og það styður hvert annað. Allur hraði og allar vegalengdir eru í boði og því er mismunandi getustig ekki fyrirstaða fyrir þátttöku.
Það að tilheyra svona hópi er hvetjandi og gefur mikilvægan félagslegan stuðning til að gera eitthvað aðeins meira en að fara bara einn út að hlaupa.
