Beint í efni
  1. Heim
  2. Styrkja starfið
  3. Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
  4. Hlauparáð - Finna sinn hraða og viðhalda honum
Maraþon 2026 - Gunnar

Hlaupa­ráð - Finna sinn hraða og við­halda hon­um

Gunnar Ármannsson byrjaði að hlaupa árið 2008 og hefur verið nær óstöðvandi síðan.

Við tökum stöðuna á hlaupurum sem ætla að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Gunnar Ármannsson greindist með blóðkrabbamein í lok árs 2005. Hann byrjaði að hlaupa 2008 og hefur verið nær óstöðvandi síðan - hlaupið hátt í 70 maraþon. Gunnar hvetur þá sem eru að taka sín fyrstu hlaupaskref að hlaupa hægt, finna sinn hraða og viðhalda honum.