Líknarmeðferð
Markmið líknarmeðferðar er að fyrirbyggja og meðhöndla einkenni sjúkdóms og sjúkdómsmeðferðar eins snemma og auðið er. Það á einnig við um andleg, sálræn og félagsleg vandamál sem tengjast veikindunum.
Líknarmeðferð er hægt að veita frá greiningu samhliða annarri meðferð. Áhersla á líknarmeðferð ætti að aukast eftir því sem sjúkdómur versnar og vera mest við lífslok.
Í líknarmeðferð er áhersla lögð á:
- samræður um stöðu sjúkdóms, hvert stefna á í meðferð og óskir sjúklings
- að meta líðan og þarfir sjúklings og fjölskyldu
- að fyrirbyggja og meðhöndla einkenni
- að styðja sjúkling og fjölskyldu við að takast á við breyttar aðstæður
- samstarf heilbrigðisstarfsfólks
Hver veitir líknarmeðferð?
Allir heilbrigðisstarfsmenn sem sinna sjúklingum með lífsógnandi sjúkdóma geta veitt líknarmeðferð, hvar sem þeir starfa.
Til er sérhæfð líknarþjónusta, HERA, sem er ætluð sjúklingum með versnandi sjúkdóma og þeim sem eru með erfið, fjölþætt og flókin einkenni.
Mörgum getur gagnast þessi sérhæfða þjónusta tímabundið til að ná tökum á einkennum og/eða erfiðleikum vegna veikinda.
Hvað getur þú gert?
Góð samvinna milli sjúklings, fjölskyldu og heilbrigðisstarfsfólks er mikilvæg til að takast á við veikindin. Meðferð verður árangursríkari ef þú ert vel upplýst/ur, tekur þátt í ákvörðunum og ræðir opinskátt við heilbrigðisstarfsfólk.
Þú getur:
- rætt við lækni um markmið meðferðar, áherslur þínar og óskir
- látið lækni eða hjúkrunarfræðing vita af einkennum sem þú hefur, svo sem mæði, þreytu, verkjum, þunglyndi, kvíða, svefntruflunum, hægða- eða þvagvandamálum
- rætt við lækni eða hjúkrunarfræðing um stuðning frá m.a. félagsráðgjafa, sálfræðingi, geðlækni eða presti
- óskað eftir að fjölskylda þín fái upplýsingar og stuðning
- óskað eftir því að þeir sem sinna þér ræði og vinni saman
Hér má lesa nánar um HERU, sérhæfða líknarmeðferð Landspítala (pdf)