Beint í efni

Við­var­andi verk­ir án þess að or­sök sé ljós

Fjölbreytilegar ástæður geta legið að baki verkjum. Finnir þú fyrir langvarandi verkjum sem ekki eiga sér ljósar orsakir ættir þú að leita til læknis.

Vertu sérstaklega vakandi fyrir:

  • óútskýrðum verk sem er viðvarandi
  • nýtilkomnum, miklum og þrálátum verk
  • miklum höfuðverk sem ekki hverfur
  • verkjum í baki eða mjaðmagrind
  • magaverkjum sem vara lengur en í mánuð
  • djúpum beinverkjum sem helst verður vart á næturnar

Fólk finnur ekki fyrir verkjum í krabbameinsæxli. Æxli geta hins vegar valdið verkjum ef þau vaxa inn í eða þrýsta á t.d. líffæri eða taugar.