Beint í efni

Þykk­ildi eða hnút­ar

Ef vart verður við nýjan hnút/þykkildi eða breytingar á þeim sem eru til staðar ætti að leita til læknis.

Þykkildi og hnútar geta myndast víðs vegar í líkamanum, t.d. í pung, í brjósti, á hálsi, vörum, tungu, í handarkrika eða nára.

Hnútar og þykkildi geta verið af völdum sýkinga, verið vökvafylltar blöðrur eða góðkynja æxli. Um krabbameinsæxli gæti þó einnig verið að ræða. Því ætti að leita til læknis verði maður var við slíkt.

Vertu sérstaklega vakandi fyrir

  • hnút sem fer hratt stækkandi
  • hnút sem er harður/þéttur í sér
  • hnút sem er eymslalaus

Mikilvægt er að taka eftir hnútum hvar svo sem þeir myndast á líkamanum en sérstakar leiðbeiningar um hvernig konur ættu að þreifa brjóst sín reglulega og karlar eistu er að finna hér:

Brjóstaþreifing– kennslumyndband

Sjálfskoðun eistna - bæklingur