Beint í efni

Þrá­lát­ur hósti eða hæsi

Finnir þú fyrir hósta eða hæsi lengur en í nokkrar vikur eða hefur langvarandi hósta sem svo breytist ættir þú að leita til læknis.

Ýmislegt annað en krabbamein getur valdið hósta og hæsi. Mikilvægt er þó að bregðast við eins og hér er lýst þegar einkennin eru óvenjuleg, langvarandi eða af óljósum ástæðum.

Hósti er eðlilegt viðbragð líkamans til að hreinsa lungu og loftvegi en mikilvægt er að taka eftir því ef „venjulegur“ hósti hefur breyst, t.d.

  • er orðinn þurr hósti
  • er hósti sem fer versnandi
  • ef verkir fylgja hóstanum
  • er hósti sem hljómar öðruvísi en vant er
  • ef slím fylgir hóstanum

Ef breyttum hósta fylgja einnig einkenni sýkingar, t.d. slímuppgangur eða hiti getur verið um að ræða krónískar berkjubólgur. Einkennin geta þó líka átt rót sína að rekja til lungnakrabbameins.

Hósti af völdum lungnakrabbameins getur stafað af því að krabbameinsæxli vex einhvers staðar inn í loftvegina og veldur ertingu. Slímuppgangur í tengslum við hita eða hósta getur stafað af sýkingu í krabbameinsæxli. Oft þarf lítið til að blæði úr krabbameinsæxli og því getur fólk hóstað upp blóði frá æxli í lungum.

Blóðugur uppgangur

Hósti manneskja blóði eða blóðugu slími ætti hún strax að leita til læknis.

Hæsi

Flestir hafa einhvern tímann „misst röddina“ eða orðið hásir, t.d. í tengslum við kvef eða þegar reynt hefur mikið á röddina. Mikil áfengisdrykkja og reykingar geta einnig valdið langtímahæsi.

Verði einstaklingur hins vegar skyndilega hás án ástæðu og losnar ekki við hæsina að nokkrum vikum liðnum ætti að leita til læknis. Slíkt einkenni getur stafað af krabbameini í hálsi eða skjaldkirtli.