Sár sem ekki grær
Sár gróa oftast fljótt. Sért þú með sár sem ekki grær ættir þú að óska eftir skoðun hjá lækni.
Sár sem grær ekki getur verið krabbamein.
Vertu á varðbergi. Ef þú hefur fundið fyrir eftirfarandi einkennum í nokkra mánuði ættir þú að leita til læknis:
- sár sem ekki virðist ætla að gróa
- þykkildi eða hnútur sem fer stækkandi og fer að vessa eða blæða úr
Munnur
Krabbamein í vörum birtist oftast sem sár sem ekki grær og er í flestum tilfellum á neðri vör.
Sár inni í munni sem ekki grær eða langvarandi rauð- eða hvítleitir flekkir á tungu, tannholdi eða hálskirtlum geta verið frumstig krabbameins.
Kynfæri
Sár, kláði og erting í húð á kynfærasvæði geta haft fjölmargar orsakir en ein þeirra er krabbamein, bæði sem krabbamein í getnaðarlim karla og í sköpum kvenna (ytri kynfærum).
Fylgstu með húðinni
Skoðaðu húðina reglulega, þá tekur þú frekar eftir breytingum og getur brugðist fljótt við.
