Beint í efni

Óvenju­leg þreyta

Ef þú hefur fundið fyrir mikilli þreytu/magnleysi (e. fatigue) í nokkrar vikur, án augljósrar ástæðu ætti að leita til læknis.

Viðvarandi þreyta er einkenni margra sjúkdóma og gefur til kynna að einstaklingur sé ekki frískur. Blóðskortur getur verið ein af orsökum þreytu. Ein af mögulegum ástæðum blóðleysis er krabbamein.

Magnleysi (e. fatigue) er mjög mikil þreyta sem ekki breytist þrátt fyrir hvíld. Slíkrar þreytu getur orðið vart þegar krabbamein vex og dreifir úr sér. Einstaka gerðir krabbameins geta þó valdið miklum þreytueinkennum á snemmstigum, t.d. hvítblæði. Einnig getur t.d. krabbamein í maga eða ristli valdið blóðmissi sem svo hefur í för með sér þreytueinkenni.

Finnir þú fyrir þreytu og almennum slappleika getur það átt sér ýmsar skýringar aðrar en krabbamein, en mikilvægt er að fá úr því skorið. Leitaðu því til læknis finnir þú fyrir slíkum einkennum í lengri tíma.