Beint í efni

Óvenju­leg blæð­ing

Óvenjuleg blæðing

Alltaf ætti að taka óvenjulega blæðingu alvarlega og leita til læknis, t.d.

blóð í hægðum, þvagi, sæði eða uppköstum, blæðing úr leggöngum á milli reglubundinna tíðablæðinga, eftir tíðahvörf eða eftir samfarir, blóðugur uppgangur við hósta.

Blæðingar eins og hér að ofan er lýst geta vissulega átt sér fjölmargar orsakir aðrar en krabbamein, svo sem sýkingar, skeinusár eða gyllinæð.

Þær geta þó einnig verið af völdum krabbameins. Það getur m.a. stafað af því að í krabbameinsæxli myndast nýjar blóðæðar sem auðveldlega getur blætt úr. Einnig getur krabbameinsæxli vaxið inn í æð sem til staðar er, rofið hana og þannig valdið blæðingu.

Vertu vakandi fyrir:

Blóðugum uppköstum

  • Blóðug uppköst geta t.d. stafað af skæðri sýkingu í maga eða magasári. Magakrabbamein getur þó líka verið orsökin. Kasti manneskja upp fersku blóði ætti að leita strax til læknis.

Blóðugu slími úr hálsi

  • Blóðugur slímugur uppgangur sem hóstað er upp getur m.a. orsakast af berkjubólgu en getur líka verið merki um lungnakrabbamein.

Rauðu eða svörtu blóði í hægðum

  • Blóð frá endaþarmi á í flestum tilfellum rætur sínar að rekja til gyllinæðar en ferskt, rautt blóð í hægðum getur líka verið merki um ristil- eða endaþarmskrabbamein. Viss matur, t.d. rauðbeður sem og járn eða vítamín sem inniheldur járn, getur litað hægðirnar dökkar. Dökkar hægðir geta þó einnig stafað af blæðingum í ristli. Hvort sem hægðir eru dökkar eða litaðar fersku blóði ætti að leita til læknis.

Blóði í þvagi

  • Blóð í þvagi getur m.a. verið af völdum sýkingar eða nýrnasteins. Það getur þó líka verið einkenni krabbameins í nýrum eða þvagblöðru og blæðingu af þeim völdum fylgja sjaldnast verkir. Alltaf ætti að leita til læknis verði vart við blóð í þvagi.

Blæðingu frá leggöngum

  • Blæði frá leggöngum utan reglulegra tíðablæðinga, eftir tíðahvörf eða eftir samfarir ætti að leita til læknis. Krabbamein í leghálsi eða legi er möguleg orsök slíkra blæðinga.  

Blóði í sæði

  • Sjaldnast greinist ástæðan fyrir því að blóð finnist í sæði en það getur mögulega verið af völdum sýkingar eða verið einkenni blöðruhálskirtilskrabbameins.