Óútskýrt þyngdartap
Líkamsþyngd okkar getur breyst ef breytingar verða á matar- eða hreyfivenjum. Ef við hins vegar léttumst án slíkra breytinga er ráðlegt að leita til læknis.
Ýmsar ástæður geta legið að baki því að manneskja léttist og er þyngdartap fylgifiskur margra sjúkdóma. Þeirra á meðal er krabbamein. Mikilvægt er því að leitað sé til læknis ef einstaklingur upplifir slíkt.
Þegar fólk með krabbamein léttist getur það m.a. verið vegna þess að krabbameinsfrumur nota mikla orku sem líkaminn hefði annars notað til annarra hluta. Krabbameinsfrumur geta líka haft áhrif sem breyta því hvernig líkaminn vinnur úr næringarefnum fæðunnar.
