Önnur, óalgengari einkenni
Ýmis einkenni önnur en þau algengustu sem fjallað er um hér á síðunni geta verið merki um krabbamein. Vertu vakandi fyrir breytingum á líkama þínum og þá sérstaklega ef þær eru óvenjulegar fyrir þig, af óljósum ástæðum eða viðvarandi.
Ef þú verður var/vör við afgerandi breytingar á einhverri líkamsstarfsemi eða líðan þinni – sérstaklega ef þær eru langvarandi eða fara versnandi – ættir þú að leita til læknis. Ef einkennin eiga rót sína að rekja til krabbameins eru líkur á árangri af meðferð meiri, því fyrr sem hún hefst.